Upp um 407 sæti á heimslistanum
Íþróttir | Golf | mbl | 19.8.2026 | 20:05 | Uppfært 20.8.2026 13:04
Hinn 16 ára gamli Óliver Elí Björnsson fór upp um 407 sæti á heimslistanum með sigrinum glæsilega á Opna breska áhugamannamótinu í golfi um síðastliðna helgi.
Hann er nú í 1.243. sæti heimslistans og er í sjötta sæti Íslendinga.
Gunnlaugur Árni Sveinsson er efstur í 20. sæti. Aron Emil Gunnarsson er í 527. sæti, Böðvar Bragi Pálsson í 824. sæti, Veigar Heiðarsson í 837. sæti og Kristján Karl Guðjónsson í 993. sæti.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗