Flugurnar leika kylfinga grátt

Lydia Ko hefur orðið fyrir barðinu á moskítóflugum í Kanada.

Lydia Ko hefur orðið fyrir barðinu á moskítóflugum í Kanada. AFP/Emmanuel Dunand

Allt að 15 sinnum fleiri moskítóflugur en venjulega eru að gera bestu kylfingum heims lífið leitt á LPGA-mótinu í Edmonton í Kanada.

Rannsakandi á svæðinu áætlaði í júlí að moskítóflugur væru um 15 sinnum fleiri í Edmonton en á sama tíma í fyrra, vegna meiri úrkomu en venjulega.

Kylfingar á LPGA-mótaröðinni fá nú að kynnast þessu af eigin raun. Nýsjálenski kylfingurinn Lydia Ko hefur meðal annars gripið til ýmissa varnaraðgerða gegn flugunum blóðþyrstu.

„Ég er með þrjú mismunandi efni til að fæla flugurnar frá og er enn að reyna að finna eitt sem virkar í alvöru.“

„Ég sagði við sjálfa mig að þessi vika snúist um að lifa af í síðerma bolum, síðum buxum og löngum sokkum. Ég ætla ekki að vera óþarflega berskjölduð.“

„Ég er þekkt fyrir að vera í ermalausum bolum en það verða engir berir handleggir þessa vikuna. Ég reyni að hylja mig og vil ekki vera eins og kjöt á hlaðborði fyrir moskítóflugurnar,“ sagði Ko.

Ko lék á pari á fyrsta hringnum á fimmtudag og er í 63. sæti.

Kanadíski kylfingurinn Anna Huang er í fimmta sæti en slapp ekki ósködduð frá fyrsta hringnum þrátt fyrir að hafa einnig klæðst síðerma bol og síðum buxum.

„Þetta er frekar slæmt. Handleggirnir á mér eru orðnir ansi rauðir,“ sagði Huang.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅