Íslenski táningurinn slær áfram í gegn
Hinn 16 ára gamli Óliver Elí Björnsson heldur áfram að gera það gott í golfheiminum eftir sigurinn glæsilega á Opna breska áhugamannamótinu um síðustu helgi.
Óliver er í Evrópuúrvalinu gegn því breska/írska á Jacques Léglise-bikarnum á Írlandi og hann fer vel af stað.
Óliver vann fyrstu viðureignina sína í dag með Mathias Aase í fjórmenningi, 3:1.
Hann keppti svo einn gegn Isaac Oliver og fór með sigur af hólmi, 8:4.
Seinni dagurinn fer fram á morgun en Óliver og félagar eru með 8:4-forskot þegar mótið er hálfnað.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗