Mjög góð frammistaða hjá Óliver Elí

Óliver Elí Björnsson.

Óliver Elí Björnsson. Ljósmynd/GSÍ

Kylfingurinn ungi Óliver Elí Björnsson stóð sig afar vel með liði meginlands Evrópu sem vann sigur gegn Bretlandi og Írlandi í Jacques Léglise Trophy á The Island Golf Club á Írlandi.

Evrópuliðið hafði betur með fjórtán og hálfan vinning gegn tíu og hálfum vinningi.

Keiliskappinn, sem er 15 ára, lék fjóra leiki og fékk 2,5 vinninga. Hann vann tvo leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði einum. 

Óliver Elí hóf keppnina í fjórmenningi ásamt Norðmanninum Mathias Aase. Þeir unnu Englendingana Cole Self og George Whitehead 3:1 og tryggðu Evrópu fyrsta stig mótsins.

Í tvímenningsleiknum síðar sama dag vann hann Írann Isaac Oliver 4:3 eftir frábæran leik, en hann var sex undir pari þegar leiknum lauk eftir 15 holur.

Á laugardag lék Óliver Elí fyrst fjórmenning með Gonzalo Ramos. Þeir töpuðu 6:5 fyrir Charlie Rushbride og Aaron Moody.

Í síðasta leik sínum mætti Óliver Elí Moody í spennandi tvímenningsleik. Moody náði fjögurra holna forskoti en Óliver Elí vann næstu fjórar og jafnaði. Moody jafnaði síðan aftur á 15. holu og leikmennirnir deildu síðustu þremur holunum.

Jacques Léglise Trophy er árleg liðakeppni þar sem níu af fremstu kylfingum meginlands Evrópu, 18 ára og yngri, mæta úrvalsliði Bretlands og Írlands.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅