Tiger Woods gjörbreyttur í nýju myndskeiði
Tiger Woods vakti mikla athygli þegar hann birtist í myndskeiði við afhendingu Payne Stewart-verðlaunanna á þriðjudag, en kylfingurinn hefur lítið sést opinberlega að undanförnu.
Woods, sem er fimmtugur, heiðraði fyrrverandi atvinnukylfinginn Notah Begay í myndskeiðinu. Þeir hafa þekkst frá því Woods var aðeins ellefu ára og bundist sterkum vináttuböndum í gegnum tíðina.
Woods hrósaði Begay meðal annars fyrir árangur hans á golfvellinum en lagði sérstaka áherslu á umfangsmikið starf hans í þágu frumbyggjasamfélaga í Bandaríkjunum. Begay hefur að sögn komið að verkefnum sem hafa stutt tugþúsundir barna og fjölskyldna.
Það voru þó ekki aðeins orð Woods sem vöktu athygli. Útlit Woods vakti einnig talsverða athygli á samfélagsmiðlum þar sem nokkrir lýstu áhyggjum af kylfingnum og töldu hann hafa breyst mikið frá því hann sást síðast opinberlega. Aðrir voru ósammála og sögðu Woods líta bæði vel og hraustlega út.
Hefur lítið sést opinberlega
Woods hefur haldið sig að mestu frá sviðsljósinu undanfarna mánuði. Hann var handtekinn í Flórída í mars grunaður um akstur undir áhrifum eftir umferðarslys.
Lögregla sagði hann hafa sýnt merki um skerta getu en ekkert áfengi mældist við öndunarpróf. Síðar fundust tvær töflur af verkjalyfinu hýdrókódóni í fórum hans.
Woods neitaði sök og fór skömmu síðar í meðferð í Sviss, þar sem hann dvaldi með hléum fram á mitt sumar.
Heimildarmaður People sagði í kjölfarið að Woods hefði verið undir miklu álagi en væri staðráðinn í að snúa aftur á golfvöllinn. Til þess þyrfti hann meðal annars að ná betri tökum á verkjum og koma sér aftur í reglubundna líkamsþjálfun.
— Golf Channel (@GolfChannel) August 25, 2026"More people need to know what you've done and how you've served ... you're trying to raise the bar to allow people to go ahead and achieve a lot more in life."
Tiger Woods sends a heartfelt message to Notah Begay during the Payne Stewart Award ceremony.
Golf Channel |… pic.twitter.com/vWieI5f1DW
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
