Hafa miklar áhyggjur af Tiger Woods

Tiger Woods

Tiger Woods AFP/Glyn Kirk

Tiger Woods, þekktasti kylfingur allra tíma, hefur látið lítið fyrir sér fara frá því hann var handtekinn í mars og ákærður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.

Woods tók þó upp myndskeið fyrir annan kylfing, Notah Begay III, þegar hann tók við Payne Stewart-verðlaununum.

Var myndbandið spilað á verðlaunaafhendingunni og síðan birt á samfélagsmiðlum samtakanna.

Margir hafa áhyggjur af Tiger eftir að myndbandið var gert opinbert, þar sem hann hefur oft litið betur út.

„Hann er skugginn af sjálfum sér,“ skrifaði einn og annar: „Hvað er í gangi hjá honum?“

Tiger fór í meðferð í Sviss eftir handtökuna. Mál hans verður tekið fyrir hjá dómstólum 8. september næstkomandi.

Myndskeiðið má sjá hér fyrir neðan. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅