Gamla ljósmyndin: Sá fyrsti af sjö

Íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is heldur áfram að gramsa í myndasafni Morgunblaðsins og birta á mbl.is á laugardögum. 

Skagamaðurinn Birgir Leifur Hafþórsson er sigursælastur í karlaflokki á Íslandsmótinu í golfi en hann hefur sjö sinnum sigrað á Íslandsmótinu. Þegar hann náði sjöunda sigrinum á Akureyri fór hann fram úr Björgvini Þorsteinssyni og Úlfari Jónssyni. 

30 ár eru frá því að Birgir Leifur braut ísinn og sigraði í Vestmannaeyjum sumarið 1996 en Birgir var þá einungis tvítugur. 

Á myndinni fagnar Birgir góðu pútti á lokahring mótsins 1996 en Eyjamaðurinn Þorsteinn Hallgrímsson situr á hækjum sér og virðir fyrir sér púttlínuna. Þorsteinn hafnaði í öðru sæti í mótinu. Sigfús Gunnar Guðmundsson tók myndina en hann myndaði lengi íþróttaviðburði í Vestmannaeyjum fyrir Morgunblaðið og mbl.is. Náttúran í bakgrunni er með því flottasta sem sést á íþróttaljósmyndum. Myndin birtist með umfjöllun um mótið í íþróttablað Morgunblaðsins.

Birgir Leifur varð tvívegis Íslandsmeistari í Vestmannaeyjum og minntist á það í Morgunblaðinu oftar en einu sinni að hann ætti ættir að rekja til Eyja og þar liði honum vel. Birgir Leifur keppti lengi vel fyrir uppeldeldisklúbbinn Leyni á Akranesi en færði sig síðar í Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar. Skilaði Íslandsmeistaratitlum fyrir báða klúbbana. 

Birgir Leifur varð fyrstur íslenskra karla til að öðlast fullan keppnisrétt á Evrópumótaröðinni eða næststerkustu mótaröð í heimi á þeim tíma en Birgir komst inn á mótaröðina í gegnum úrtökumótin í lok árs 2006. Brjósklos og meiðsli í hálsi settu um tíma stórt strik í reikninginn hjá Birgi en hann vann sér aftur keppnisrétt á Evrópumótaröðinni mörgum árum síðar. 

Besti árangur hans á Evrópumótaröðinni var 11. sæti í móti á Ítalíu og var þá þremur höggum á eftir sigurvegaranum. Þess má geta að á þeim tíma var Evrópumótaröðin sterkari hvað það varðar og fleiri kylfingar úr Ryderliði Evrópu léku á mótaröðinni frekar en að flytja sig alfarið til Bandaríkjanna. 

Birgir Leifur var í blönduðu liði Íslands sem sigraði á Evrópumótinu 2018 en mótið fór fram á hinum þekkta Gleneagles-velli í Skotlandi. Í liðinu voru einnig Axel Bóasson, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir. 

Birgir Leifur sigraði með yfirburðum á móti í Frakklandi á Áskorendamótaröð Evrópu sem eins konar b-deild í Evrópu og er eini Íslendingurinn sem unnið hefur mót á þeirri mótaröð. Setti hann mótsmet með skori sínu í mótinu. 

Birgir Leifur varð sjö sinnum á meðal tíu efstu í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins og fór hæst í 4. sæti árið 2006. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅