Draumur að rætast hjá Sveindísi og Holding?

Rob Holding og Sveindís Jane Jónsdóttir á góðri stundu.

Rob Holding og Sveindís Jane Jónsdóttir á góðri stundu. Ljósmynd/@sveindisss

Enski knattspyrnumaðurinn Rob Holding er á förum frá bandaríska MLS-félaginu Colorado Rapids.

Það er Sky Sports sem greinir frá þessu en Holding, sem er 31 árs gamall, er unnusti íslensku landsliðskonunnar Sveindísar Jane Jónsdóttur.

Holding hefur leikið með Colorado frá árinu 2025 en félaginu mistókst að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni á yfirstandandi tímabili.

Orðaður við England og Bandaríkin

Hann hefur verið sterklega orðaður við bæði Sheffield United á Englandi sem og Los Angeles FC og Houston Dynamo í bandarísku MLS-deildinni.

Sveindís hefur leikið með Angel City frá árinu 2025 og er samningsbundin félaginu út keppnistímabilið 2027.

Fari svo að Holding gangi til liðs við Los Angeles City yrðu hann og Sveindís sameinuð í sömu borg í fyrsta sinn frá því að þau fóru að stinga saman nefjum í október árið 2024.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab