Viðurkenna að bankaskattur geti lent á heimilum

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra.

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. mbl.is/Eyþór

Fyrirhuguð hækkun bankaskatts gæti leitt til hærri útlánsvaxta, lægri innlánsvaxta og aukinna þjónustugjalda fyrir viðskiptavini bankanna. Þetta kemur fram í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytisins til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.

Ríkisstjórnin hyggst hækka sérstakan bankaskatt á fjármálafyrirtæki úr 0,145% í 0,254% og er áætlað að hækkunin skili ríkissjóði um sex milljörðum króna í auknar tekjur á næsta ári.

Í minnisblaðinu, sem unnið var að beiðni þingnefndarinnar, kemur fram að óvissa ríki um hvernig skattbyrðin muni skiptast á milli bankanna, eigenda þeirra og viðskiptavina.

Ráðuneytið bendir sérstaklega á að sterk markaðsstaða íslensku bankanna auki möguleika þeirra á að velta kostnaðinum yfir á neytendur.

„Sterk markaðsstaða íslenskra banka hér á landi eykur möguleika þeirra á að bregðast við hækkun bankaskatts með því að hækka verð á fjármálaþjónustu til neytenda,“ segir í minnisblaðinu.

Gæti aukið greiðslubyrði húsnæðislána

Í áhrifamati sem fylgir frumvarpinu er tekið dæmi þar sem bankarnir velta kostnaði vegna hækkunarinnar yfir á viðskiptavini með auknum vaxtamun.

Í dæminu er gert ráð fyrir að kostnaðurinn skiptist til helminga á milli lántakenda og innstæðueigenda. Við þær aðstæður gætu útlánsvextir hækkað að meðaltali um 0,06 prósentustig og innlánsvextir lækkað um 0,09 prósentustig.

Viðskiptabankarnir þrír.

Viðskiptabankarnir þrír. Samsett mynd/Eggert/Kristinn Magnússon/Karítas

Slík hækkun útlánsvaxta myndi samkvæmt útreikningum ráðuneytisins auka árlegan vaxtakostnað af 50 milljóna króna óverðtryggðu láni með breytilegum vöxtum um 30 þúsund krónur.

Á sama tíma myndu þeir sem eiga sparifé á innlánsreikningum fá lægri vaxtatekjur.

Tekið er fram að útreikningarnir séu dæmi um möguleg áhrif en ekki spá um hvernig bankarnir muni bregðast við skattahækkuninni.

Gæti dregið úr neyslu heimilanna

Ráðuneytið segir að áhrifin geti einnig komið fram í hærri þjónustugjöldum, minna framboði lánsfjár eða strangari skilyrðum fyrir lántakendur.

Hærri útlánsvextir myndu meðal annars gera fasteignakaup dýrari og auka greiðslubyrði þeirra sem þegar eru með lán. Það gæti orðið til þess að heimilin hefðu minna fé til annarra útgjalda.

Á móti bendir ráðuneytið á að samkeppni við aðra lánveitendur, meðal annars lífeyrissjóði, geti takmarkað möguleika bankanna til að velta kostnaðinum yfir á viðskiptavini.

Bankarnir gætu því þurft að bera hluta skattahækkunarinnar sjálfir með minni hagnaði og arðsemi.

Telja skattahækkun stuðla að lægri vöxtum

Í minnisblaðinu kemur jafnframt fram að markmið ríkisstjórnarinnar með hækkun bankaskatts sé að bæta afkomu ríkissjóðs og stuðla að betra jafnvægi í ríkisfjármálum.

Að mati ráðuneytisins geti það dregið úr eftirspurn og verðbólguþrýstingi og skapað skilyrði fyrir lækkun stýrivaxta.

Þannig geti skattahækkunin haft jákvæð áhrif á fjárhag heimila og fyrirtækja til lengri tíma, þótt hún kunni að leiða til hærri kostnaðar við fjármálaþjónustu.

Ráðuneytið tekur þó fram að ekki sé hægt að segja fyrir um endanleg áhrif hækkunarinnar án þess að vita hvernig bankarnir muni bregðast við og hvernig kostnaðurinn skiptist á milli þeirra og viðskiptavina.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab