Grænlendingar framleiða nú þorskalýsi
Lifur skorin úr þorski í fiskvinnslu Royal Greenland í Maniitsoq á vesturströnd Grænlands. Ljósmynd/Royal Greenland
Royal Greenland hefur hafið framleiðslu á þorskalýsi í atvinnuskyni, fyrst fyrirtækja á Grænlandi. Framleiðslan er sögð liður í að bæta nýtingu og mæta auknum áhuga á hliðarafurðum í fiskvinnslu.
„Framleiðslan fer fram í verksmiðju Royal Greenland í Maniitsoq á vesturströnd Grænlands, þar sem fyrirtækið hefur framleitt lýsi fyrir alþjóðlega markaði frá því í maí 2026,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins.
Haft er eftir Kristian Ottesen, yfirmanni framleiðsluferla hjá Royal Greenland, að með framleiðslunni leitist fyrirtækið við að standa undir ábyrgðinni sem fylgir því að nýta náttúruauðlindir.
„Framleiðsla á þorskalýsi er áþreifanlegt dæmi um hvernig við hrindum í framkvæmd markmiðum okkar um að nýta stærri hluta fisksins og skapa meiri verðmæti innanlands á Grænlandi. Þetta er ekki bara hugmynd á blaði,“ segir hann.
Þá segir að Royal Greenland finni jafnframt fyrir vaxandi áhuga kaupenda á afurðum sem unnar séu úr hliðarhráefni fiskvinnslu.
„Áður fyrr vöktu lifur, roð og annað hliðarhráefni ekki mikla athygli. Í dag sjáum við hins vegar mikil tækifæri í nýtingu þessa hráefnis og sem betur fer gera viðskiptavinir okkar um allan heim það líka. Þess vegna er það skynsamlegt í alla staði að leggja aukna áherslu á að nýta stærri hluta fisksins,“ bætir Ottesen við.
Af því að þorskur gegni sífellt mikilvægara hlutverki í sjávarútvegi Grænlands segist Royal Greenland nú vinna að fjárfestingum í uppbyggingu og stækkun vinnsluinnviða í landi.
„Meðal annars hefur fyrirtækið hafið kaup á þorsklifur af sjómönnum í Nuuk. Lifrin er bæði nýtt til eigin lýsisframleiðslu fyrirtækisins í Maniitsoq og seld sem hráefni til viðskiptavina Royal Greenland,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗