Tvöfalt fleiri útköll vegna gróðurelda
Útköllum slökkviliða fjölgaði á milli ára og settu þá gróðureldar sérstaklega mark sitt á fyrri hluta ársins þegar þau voru tvöfalt fleiri en í fyrra.
Þetta kemur fram í tilkynningu Húsnæðis- og mannvirkja- og skipulagsstofnunar og byggir á gögnum úr útkallsskýrslugrunni slökkviliða.
Þá voru útköll vegna elds í byggingum einnig fleiri en í fyrra og voru þrjú af hverjum fjórum þeirra í öðrum af tveimur hæstu forgangsflokkunum, þar sem líf var talið í hættu.
Almennt fjölgað undanfarinn áratug
Í tilkynningunni segir að slökkvilið landsins hafi sinnt 727 útköllum á þriðja ársfjórðungi 2026, samanborið við 683 á sama tímabili í fyrra. Á fyrstu níu mánuðum ársins voru skráð 2.118 útköll, samanborið við 1.958 í fyrra, sem er um 8 prósenta fjölgun.
Þá segir að útköllum slökkviliða hafi almennt fjölgað undanfarinn áratug. Á fyrstu níu mánuðum ársins voru þau um 44 prósentum fleiri en á sama tímabili árið 2016. Þeim fjölgar nú á ný eftir fækkun árin 2024 og 2025, en þau eru þó enn færri en árið 2023.
Enn fremur segir að langtímafjölgun útkalla megi að stærstum hluta rekja til fleiri útkalla vegna skoðana eða gruns um eld, umferðarslysa og aðstoðar við sjúkrabíl.
Helmingur í hæstu forgangsflokkum
Útköll slökkviliða eru flokkuð eftir því hversu brýn þörfin er fyrir viðbrögð. Í F1 er líf í bráðri hættu og í F2 er líf í hættu. F3 nær til útkalla þar sem aðgerða er þörf en ekki er talin lífshætta. F4 nær til útkalla og verkefna sem krefjast ekki tafarlausra viðbragða.
Í tilkynningunni segir að á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 hafi verið um 50 prósent útkalla í tveimur hæstu forgangsflokkunum, F1 og F2. Þar af voru um 11 prósent í F1 og 39 prósent í F2. Um 47 prósent voru í F3 og 3 prósent í F4.
127 útköll vegna gróðurelda
Þá segir að útköll vegna gróðurelda hafi verið 127 á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 50 á sama tímabili í fyrra. Það eru meira en tvöfalt fleiri en í fyrra og mesti fjöldi á þessu tímabili frá 2016.
Fjölgunin er sögð hafa verið mest á fyrri hluta ársins fyrir sumarið en fyrstu tveir mánuðir ársins óvenju þurrir og snjóléttir. Þurr gróður, meðal annars sina og lúpína, er sagður hafa skapað mikla eldhættu.
Í tilkynningunni segir að af 65 útköllum vegna gróðurelda á fyrsta ársfjórðungi hafi 18 verið rakin til flugelda en 47 til íkveikju eða óvarlegrar meðferðar elds. Alls voru 113 útköll vegna gróðurelda á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Á þriðja ársfjórðungi voru þau 14, samanborið við fjögur á sama tímabili í fyrra.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗




