Jón húsasmíðameistari segir þetta ástæðuna fyrir því að hús í dag eru ekki byggð jafn vel og áður
Jón Sigurðsson formaður Meistarafélags húsasmiða segir að hús í dag séu byggð of hratt, það sé ástæðan fyrir því að hús í dag séu ekki byggð jafn vel og þau voru gerð áður. Vandamál við byggingu húsa kemur reglulega upp í umræðunni, nú síðast vegna ókláraða hótelturnsins við Skúlagötu sem er allur fullur af myglu.
Jón var spurður út í hvort hús væru byggð jafn vel og áður í Bítinu á Bylgjunni í morgun:
„Nei. Við byggjum of hratt. Efnin fá ekki að þorna eðlilega. Þau fá ekki tíma til að aðlaga sig,“ segir Jón.
„Áður fyrr voru byggingameistarar að byggja og selja. Þeir voru bara að byggja vel. Núna eru þetta meira og minna fjárfestar sem ætla að mjólka kerfið eins vel og þeir geta. Byggja eins hratt og þeir geta og svo er vaxtaspursmálið, þeir geta ekki verið of lengi því þá eru vextirnir orðnir of háir.“
Áður fyrr voru húsabyggingar í höndum byggingameistara sem byggðu vel til að halda sínu orðspori góðu. Jón segir það nánast ekki hægt að fara til baka.
„Við förum aldrei afturábak. Það hefur líka breyst þekking. Það hefur tapast þekking á meðal iðnaðarmanna að hluta til því að námið hefur styst. Menn eru komnir með fyrirtæki miklu fyrr heldur var áður fyrr. Lóðirnar eru orðnar dýrar. Sveitarfélögin vilja ekki láta eina og eina lóð eins og var hérna áður fyrr. Þeir eru bara að selja eitthvað og hámarka sitt. Það er mjög erfitt að fara til baka.“
Í raun snúist bygging húsa í dag allt um peninga en ekki gæði. „Það er bara þannig. Það er búið að gera þetta þannig frá hruni, eða fyrir hrun.“
Staðan í byggingabransanum í dag sé ekki góð. „Hún er mjög erfið. Seðlabankastjóri er að undirbúa okkur undir næsta verðbólguskot með því að keyra niður allan byggingabransann. Þannig að næst þegar fólk ætlar að kaupa íbúðir þá verða engar íbúðir á markaði. Og þá förum við einn hringinn enn. Þá vantar íbúðir og þá kemur verðbólga og þá förum við sama hringinn og við erum búin að vera að fara síðastliðin fimmtíu ár. Menn eru ekki að reyna að gera neitt nýtt, menn eru bara að gera það sama og hefur alltaf mistekist. Það þýðir ekki að keyra niður íbúðamarkaðinn til að ná niður verðbólgu, það er bara glatað.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗