Mudryk kennir úkraínska sambandinu um ófarir sínar

Mykhailo Mudryk, leikmaður Tottenham á láni frá Chelsea, segir úkraínska knattspyrnusambandið bera ábyrgð á því að hann féll á lyfjaprófi árið 2024.

Mudryk var dæmdur í bann eftir að efnið meldonium fannst í sýni sem hann var látinn taka. Hann sneri aftur á völlinn í sumar eftir að hafa verið frá keppni í tæp tvö ár.

„Ég hafði aldrei heyrt um þetta lyf. Það er aðeins hægt að nálgast það í Austur-Evrópu. Það gat því aðeins komist í líkama minn í Úkraínu,“ segir Mudryk.

Hann telur að efnið hafi komist í líkama hans í landsliðsverkefni og gagnrýnir úkraínska knattspyrnusambandið, ekki síst vegna þess skaða sem hann hlaut af málinu, andlega og fjárhagslega.

„Þetta var eins og að detta fram af byggingu. Þetta hafði gríðarleg áhrif á mig andlega,“ sagði Mudryk, sem gekk til liðs við Tottenham í sumar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab