Klopp mistókst að fá Þjóðverjann til Liverpool
Þýski knattspyrnustjórinn Jürgen Klopp lagði mikið kapp á það að fá samlanda sinn Marc-André ter Stegen til liðs við Liverpool þegar hann stýrði enska félaginu.
Klopp, sem er 59 ára gamall, greindi sjálfur frá þessu í samtali við fjölmiðla eftir stórsigur Þýskalands gegn Hollandi í A-deild Þjóðadeildarinnar á dögunum.
Þjóðverjinn stýrði Liverpool frá 2015 til ársins 2024 og gerði liðið meðal annars að Englandsmeisturum og Evrópumeisturum á tíma sínum í Bítlaborginni.
Klopp vildi fá ter Stegen til þess að leysa Simon Mignolet af hólmi en ter Stegen ákvað að halda tryggð við Barcelona og varð áfram hjá félaginu.
Liverpool endaði svo á að kaupa Þjóðverjann Loris Karius frá Mainz sumarið 2016 sem lék með Liverpool í sex ár.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗