Jólagjafir fyrir þau sem hitta í mark
Sumir óska sér helst einhvers fallegs, aðrir vilja eitthvað nytsamlegt og svo eru það þau sem segjast ekkert vanta. Að finna réttu jólagjöfina getur því verið skemmtileg áskorun. Oft kviknar hugmyndin þegar eitthvað fangar augað og ákveðin manneskja kemur strax upp í hugann: „Þetta væri fullkomið fyrir þau.“
Hvort sem leitað er að gjöf fyrir makann, foreldrana, vinina eða parið sem á flest er ánægjulegt að finna eitthvað sem hæfir áhugamálum þeirra og smekk. Kannski er það eitthvað sem gerir hversdaginn þægilegri, falleg viðbót á heimilið eða upplifun sem gefur þeim tilefni til að verja góðum tíma saman.
Hér eru tíu fjölbreyttar gjafahugmyndir sem gætu stytt leitina og komið skemmtilega á óvart undir jólatrénu.
Í stað hefðbundinnar gjafar býður Óskaskrín upp á tækifæri til að skapa sameiginlega stund og velja upplifun eftir eigin smekk. Ljósmynd/Aðsend
Velja upplifun eftir eigin smekk
Óskaskrín eru gjafaöskjur sem innihalda fjölbreyttar upplifanir og hafa notið vinsælda sem jólagjöf handa pörum. Í stað hefðbundinnar gjafar býður Óskaskrín upp á tækifæri til að skapa sameiginlega stund og velja upplifun eftir eigin smekk, hvort sem það er kvöldverður, dekur, gisting eða afþreying.
Meðal vinsælla valkosta fyrir þau eru Rómantík, Stefnumót, Kósý Kvöld og Gæðastund. Þar geta viðtakendur valið úr fjölbreyttu úrvali samstarfsaðila um land allt. Gefðu upplifun og minningu sem endist lengur en jólin sjálf.
Óskaskrín fást í verslunum Hagkaups, Pennans Eymundsson, Blómavals og á vefnum Óskaskrín.is.
Roborock Qrevo 798 ryksuguvélmennið sér bæði um að ryksuga og moppa gólfin og er með öflugan 10.000 Pa sogkraft sem fjarlægir ryk, óhreinindi og dýrahár. Ljósmynd/Aðsend
Stór hluti þrifanna afgreidd með lágmarksfyrirhöfn
Jólin eru tilvalið tækifæri til að fjárfesta í einhverju sem hefur lengi verið á óskalistanum fyrir heimilið. Margir kjósa að gefa sameiginlega gjöf sem nýtist öllum, til dæmis heimilistæki sem löngu er kominn tími til að endurnýja. Ryksugan er gott dæmi um heimilistæki sem við látum oft duga árum saman, þótt nýrri gerðir geti gert heimilisþrifin mun einfaldari.
Roborock Qrevo 798 ryksuguvélmennið er tilvalin gjöf fyrir þau sem vilja eyða minni tíma í heimilisþrifin. Vélmennið sér bæði um að ryksuga og moppa gólfin og er með öflugan 10.000 Pa sogkraft sem fjarlægir ryk, óhreinindi og dýrahár. Snjöll leiðsögn gerir því kleift að kortleggja heimilið og forðast hindranir.
Það sem gerir vélmennið sérstaklega þægilegt er sjálfhreinsandi hleðslustöðin sem tæmir ryksuguna, fyllir á vatn og þvær og þurrkar moppurnar sjálfkrafa. Þannig sér vélmennið um stóran hluta heimilisþrifanna með lágmarksfyrirhöfn og gefur heimilisfólkinu meiri tíma til að sinna öðru.
Kaldakvísl úlpan frá Icewear hefur slegið í gegn fyrir að sameina hlýju, þægindi og tímalausa hönnun. Ljósmynd/Aðsend
Gefðu hlýju og útiveru með Kaldakvísl úlpunni frá Icewear
Góðar samverustundir úti í náttúrunni eru ómetanlegar en vönduð úlpa gerir hverja gönguferð og kaldan vetrardag mun ánægjulegri.
Kaldakvísl úlpan frá Icewear hefur slegið í gegn fyrir að sameina hlýju, þægindi og tímalausa hönnun. Hún er afrakstur íslenskrar nýsköpunar og er einangruð með íslenskri ullarfyllingu sem veitir framúrskarandi hitastýringu, andar vel og hrindir frá sér vætu. Auk þess ber úlpan OEKO-TEX® STANDARD 100 vottun, sem tryggir að hún sé laus við skaðleg efni og vönduð alla leið. Úlpan fæst í fjölbreyttum litum, bæði í dömu- og herrasniði, og er því hin fullkomna gjöf sem hvetur til bæði samveru og útiveru.
Fjölbreytt úrval hlýrra gjafa fæst í vefverslun og verslunum Icewear um land allt. Með því að gerast Vinur Icewear á vefsíðu Icewear fást sérkjör af öllum Icewear vörum auk þess sem regluleg og vegleg tilboð eru send til Vina Icewear.
Bestu gjafirnar eru ekki alltaf þær sem hægt er að pakka inn heldur minningarnar sem verða til. Ljósmynd/Aðsend
Fjölbreytt flóra viðburða
Ein gjöf. Ótal upplifanir. Endalausar minningar.
Bestu gjafirnar eru ekki alltaf þær sem hægt er að pakka inn heldur minningarnar sem verða til.
Með gjafakorti frá Tix.is færðu frelsi til að velja úr fjölbreyttri flóru viðburða.
Hvort sem það eru ógleymanlegir tónleikar, hláturskast á uppistandi, töfrar leikhússins eða eitthvað allt annað þá er upplifun alltaf góð gjöf!
Hvort sem gjöfin er ætluð einhverjum sem á skilið smá dekur, ástvinum sem vilja eiga notalega stund saman eða þeim sem virðast eiga allt þá er upplifun í Skógarböðunum gjöf sem gleður. Ljósmynd/Aðsend
Gefðu gjöf sem verður að fallegri minningu
Það er eitthvað sérstaklega fallegt við að gefa gjöf sem snýst ekki um hluti heldur um tíma, samveru og upplifun. Gjöf sem býður upp á notalega stund í amstri hversdagsins og verður að minningu sem lifir áfram.
Gjafabréf í Skógarböðin er einmitt slík gjöf. Í hlýju vatninu, umvafin kyrrð Vaðlaskógar og með einstakt útsýni yfir Eyjafjörð, gefst tækifæri til að staldra við og njóta augnabliksins.
Hvort sem gjöfin er ætluð einhverjum sem á skilið smá dekur, ástvinum sem vilja eiga notalega stund saman eða þeim sem virðast eiga allt þá er upplifun í Skógarböðunum gjöf sem gleður.
Í boði eru fjölbreytt gjafabréf, bæði í böðin og á Skóg Bistro, svo auðvelt er að finna eitthvað við allra hæfi.
Fallegustu jólagjafirnar eru oft þær sem verða að góðum minningum.
Þegar við komum heim eftir langan dag eiga fæturnir skilið smá dekur. Þar koma Kosy-heilsuinniskórnir til sögunnar. Ljósmynd/Aðsend
Jólagjöfin sem fæturnir þakka fyrir
Fæturnir bera okkur í gegnum lífið og því er mikilvægt að hlúa vel að þeim. Við vöndum valið á skóm fyrir vinnuna, göngutúrana og íþróttirnar en eigum það til að gleyma hversu mikilvæg þægindin eru líka heima við.
Þegar við komum heim eftir langan dag eiga fæturnir nefnilega líka skilið smá dekur. Þar koma Kosy-heilsuinniskórnir til sögunnar.
Það er fátt betra en að koma heim eftir langan dag og renna fótunum í mjúka, hlýja og einstaklega þægilega inniskó.
Kosy heilsuinniskórnir eru íslensk hönnun þar sem þægindi, gæði og vellíðan fara saman.
Skórnir eru framleiddir úr vönduðum efnum, meðal annars merínóull og ítölsku leðri og eru með sérstökum níu svæða nuddinnleggjum sem eru hannaðir til að veita fótunum aukin þægindi og stuðla að slökun eftir amstur dagsins.
Kosy eru ekki bara inniskór, þeir eru þessi notalega tilfinning að koma heim, slaka á og leyfa fótunum að njóta sin.
Fyrir þau sem eiga allt, sem eru alltaf á ferðinni eða eiga einfaldlega skilið smá extra dekur, þá er þetta jólagjöfin sem hittir beint í mark.
Kosy inniskórnir fást í Betra baki.
Parið er sérsniðið gjafabréf sem gildir hjá öllum samstarfsaðilum Gjafabréf.is sem eru yfir 250 um allt land. Ljósmynd/Aðsend
Gjöf sem gefur tíma er dýrmætust
Parið er gjafabréf fyrir þau sem vilja smá frí frá hversdagsleikanum og gera eitthvað saman sem verður að minningu. Hvort sem það er rómantískur kvöldverður, dekur í baðlóni, ferð út á land eða skemmtilegt kvöld í bænum ráða þau sjálf hvert ferðinni er heitið. Gjöf sem gefur parinu tíma saman, sem er oft það dýrmætasta af öllu.
Parið er sérsniðið gjafabréf, en gildir hjá öllum samstarfsaðilum Gjafabréf.is, sem eru yfir 250 um allt land, svo það er alltaf eitthvað sem hentar. Þú velur upphæðina og sendir gjafabréfið beint í símann.
Fullkomin jólagjöf fyrir foreldrana, vinaparið eða ykkur tvö. Því það á bara að vera gaman að gleðja.
ZALINA og TRANEBJERG flíspeysurnar frá Bergson eru hlý og notaleg jólagjöf fyrir þau sem elska útivist eða vilja einfaldlega hafa það þægilegt á köldum dögum. Ljósmynd/Aðsend
Hlý og notaleg jólagjöf
ZALINA og TRANEBJERG flíspeysurnar frá Bergson eru hlý og notaleg jólagjöf fyrir þau sem elska útivist eða vilja einfaldlega hafa það þægilegt á köldum dögum.
ZALINA er mjúk og létt aðsniðin peysa með hettu en TRANEBJERG er létt flíspeysa með háum kraga fyrir herra. Þessar henta einstaklega vel undir skíðaúlpuna en eru líka tilvaldar í gönguferðir, ferðalög, sumarbústaðinn eða hversdagslega notkun.
Falleg, hlý og nytsamleg gjöf sem kemur sér vel allan veturinn.
Verð: 11.950 kr. hvor peysa. Ókeypis heimsending.
Við bjóðum gjafabréf í eina af okkar vinsælustu þyrluferðum, Heli Happy Hour, á sérstöku jólaverði – aðeins 39.900 krónur. Ljósmynd/Aðsend
Gefðu ógleymanlega upplifun um jólin
Við bjóðum gjafabréf í eina af okkar vinsælustu þyrluferðum, Heli Happy Hour, á sérstöku jólaverði – aðeins 39.900 kr. (andvirði 49.900 kr.).
Gjafabréfið gildir einnig sem inneign upp í allar aðrar ferðir hjá okkur!
Heimaey bambusrúmfötin frá Lín Design eru silkimjúk gjöf fyrir þau sem kunna að meta þægindi og fallegt svefnherbergi. Ljósmynd/Aðsend
Heimaey – silkimjúk jólagjöf fyrir þau
Falleg jólagjöf getur líka verið boð um meiri hvíld og notalegar stundir saman. Heimaey bambusrúmfötin frá Lín Design eru silkimjúk gjöf fyrir þau sem kunna að meta þægindi og fallegt svefnherbergi.
Rúmfötin eru ofin úr 400 þráða bambusvef með glans og fágaðri áferð. Efnið er loftgott og rakadrægt og hentar þeim sem vilja létt og þægileg rúmföt næst húðinni. Mýktina finnur maður um leið og lagst er upp í rúmið eftir langan dag.
Heimaey rúmfötin eru OEKO-TEX® og GOTS-vottuð og fást í fallegum, rólegum litum, meðal annars dröppuðum, hvítum og gráum, ásamt stílhreinum röndóttum útgáfum. Þau fást í öllum stærðum, hvort sem sofið er með einstaklingssængum eða hjónasæng.
Rúmfötunum er pakkað í endurnýtanlegt púðaver og í sömu línu fást einnig lök, stök koddaver og augngrímur úr silkimjúkum bambus.
Gefðu þeim mýkt sem þau njóta kvöld eftir kvöld. Heimaey bambusrúmfötin fást hjá Lín Design á Smáratorgi og í vefverslun á lindesign.is.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗








