Þetta segja gagnrýnendur um GTA 6

Eftir þrettán ára bið er nýjasti leikurinn í GTA-seríunni, Grand Theft Auto VI, loksins kominn út. Þrátt fyrir gríðarlegar væntingar virðist framleiðandanum Rockstar Games hafa tekist ætlunarverk sitt ef marka má fyrstu dóma gagnrýnenda.

Tæknimiðillinn Mashable hefur tekið saman umsagnir fjölda gagnrýnenda og er óhætt að segja að margir þeirra séu yfir sig hrifnir. Sumir tala um meistaraverk á meðan aðrir telja leikinn marka tímamót í sögu tölvuleikja.

Á vefnum Metacritic, þar sem umsagnir gagnrýnenda eru teknar saman, er leikurinn með 99 stig af 100 mögulegum. Jafnar hann þar met sem The Legend of Zelda: Ocarina of Time hefur átt frá árinu 1998. Einkunnin getur þó tekið breytingum eftir því sem fleiri umsagnir birtast.

„Grand Theft Auto 6 er einfaldlega magnaðasti tölvuleikur sem ég hef nokkurn tíma spilað,“ segir Luke Reilly, gagnrýnandi IGN.

Hann segist reglulega verða ástfanginn af tölvuleikjum en það sé einstaklega sjaldgæft að þeir skilji hann eftir gjörsamlega agndofa.

Zack Zwiezen, gagnrýnandi Kotaku, lýsir leiknum sem meistaraverki í hönnun opinna leikjaheima og segist eiga von á því að spila hann árum saman.

Jason Schreier, blaðamaður Bloomberg, hrífst ekki síður af tæknilegri útfærslu leiksins og bendir á að grafíkin sé á köflum ótrúleg. Þá séu fáir tölvuleikir jafn fyndnir.

Það eru þó ekki eingöngu tæknilegir yfirburðir sem vekja athygli gagnrýnenda. Yussef Cole, gagnrýnandi New York Times, telur listrænan styrk leiksins einkum felast í persónusköpun aðalpersónanna tveggja, Jason og Lucia, og líkir þeim við Bonnie og Clyde.

Ekki eru þó allir gagnrýnendur jafn hrifnir. Alice Clarke, gagnrýnandi ScreenHub, segir stóra hluta leiksins stórkostlega en aðrir séu of takmarkaðir. Þegar leikurinn opnist og frelsi leikmanna aukist sé fyrirhöfnin hins vegar þess virði.

Andrew Webster, gagnrýnandi The Verge, dregur niðurstöðu sína saman í fáum orðum. Þrettán árum síðar hafi Rockstar ekki aðeins skapað verðugan arftaka GTA V heldur einnig sett ný viðmið fyrir tölvuleiki sem gerast í opnum heimi.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab