Arsenal í baráttu við Barcelona og PSG um 100 milljóna punda framherja

Arsenal hefur mikinn áhuga á Eli Junior Kroupi, tvítugum framherja Bournemouth, en félagið gæti þurft að berjast við Barcelona og Paris Saint-Germain um undirskrift hans.

Kroupi hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í ensku úrvalsdeildinni en hann skoraði 13 mörk í 33 leikjum á síðasta tímabili.

Franski landsliðsmaðurinn sneri nýverið aftur á völlinn eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna fótmeiðsla í sumar. Hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir franska A-landsliðið á sunnudaginn.

Samkvæmt The Sun gæti Bournemouth sett 100 milljóna punda verðmiða á Kroupi, sem gæti orðið til þess að Arsenal fresti mögulegum kaupum fram á næsta sumar.

Barcelona og PSG eru einnig sögð íhuga alvarlega að gera tilboð í framherjann.

Bournemouth keypti Kroupi frá Lorient í janúar á síðasta ári en félagið gæti verið tregt til að selja hann í janúar, sérstaklega þar sem miðjumaðurinn Alex Scott er einnig eftirsóttur.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab