Kossamálið í Hagaskóla vekur mikla athygli: „Hvaða andskotans tepruskapur er þetta?“

Fréttir af tveimur starfsmönnum Hagaskóla sem sáust kyssast innan veggja skólans hafa vakið nokkra athygli á samfélagsmiðlum. Fyrrverandi nemendur skólans rifja upp ástarsambönd kennara á árum áður og furða sig á því hversu mikið mál virðist nú gert úr slíkum uppákomum.

Eins og DV greindi frá í gær sendu stjórnendur Hagaskóla forráðamönnum nemenda tölvupóst vegna atviksins. Þar kom fram að starfsmennirnir tveir hefðu talið sig vera í einrúmi en sést kyssast í gegnum sandblásið gler.

Sjá einnig: Forráðamenn nemenda við Hagaskóla upplýstir um atvik í gær - Tveir starfsmenn „sáust kyssast“

Málið er til skoðunar í samráði við mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, að sögn skólastjórnenda.

Allir vissu af ástarsambandinu

Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson er meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið á Facebook og rifjar hann upp eigin skólagöngu í Hagaskóla.

„Ókey, ég veit að þetta er X-kynslóðarlegasti status í heimi, but here goes...: Þegar ég var í Hagaskólanum vissu ALLIR af ástarsambandi milli tveggja kennara skólans.“

Stefán segir að sambandið hafi leitt til pískurs á göngum skólans, augngota og þess að einstaka nemandi hafi látið óviðeigandi athugasemd falla við kennarana.

Hann telur viðbrögðin við atvikinu nú hins vegar úr takti við tilefnið.

„Blessuð börnin hafa séð hundrað sinnum svæsnari hluti á gemsunum sínum - rétt á milli þess sem Inga Sæland haldleggur þá...“

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason rifjar upp svipaða sögu úr sinni skólagöngu.

„Hópur af ungum kennurum kom til starfa í Hagaskóla um það leyti að ég hóf nám þar fyrir margt löngu, prýðisfólk.“

Egill segir að úr hópnum hafi að því er hann best muni orðið til tvö hjónabönd.

„Þessu hlýtur að hafa fylgt eitthvert kossaflens, en ég veit svosem ekki hvar það fór fram. Það komst allavega ekki í fjölmiðlana.“

Velta fyrir sér verkferlum vegna kossa

Í athugasemdum við færslu Stefáns kennir ýmissa grasa og er þar meðal annars gert grín að aðkomu mannauðsskrifstofu borgarinnar að málinu.

Hagfræðingurinn Gauti B. Eggertsson skrifar í kaldhæðnum tón:

„Hugsaðu nú um börnin Stefán. Vesalings börnin.“

Einn veltir því fyrir sér hvort sérstök viðurlög séu við kossum kennara og hvort einhverjir verkferlar séu virkjaðir við slíkar aðstæður.

Annar tekur í svipaðan streng:

„Var öllum kossum starfsmanna safnað saman og þeim komið á skrifstofu mannauðs? Má það?“

Enn annar sem tjáir sig við færslu Stefáns er öllu afdráttarlausari:

„Jeremías minn. Hvað er eiginlega vandamálið? Tveir kennarar kyssast? Hvaða andskotans tepruskapur er þetta?“

Vesturbæjargreddan

Rithöfundurinn Guðmundur Brynjólfsson gerir málið einnig að umtalsefni í gamansamri færslu á Facebook og tengir það við niðurskurð hjá Reykjavíkurborg.

„Hún ríður ekki við einteyming vesturbæjargreddan. En nú er uppi voði.“

Guðmundur gerir því skóna í gríni að svo mikið hafi verið skorið niður á mannauðssviði borgarinnar að það ráði ekki lengur við hressilegan sleik, heldur aðeins nettan koss á kinn.

Hann segir það hafa verið óráð að segja fyrst upp „sleik- og samfaravörðum sviðsins“ og að nær hefði verið að spara með því að sandblása færri rúður í húsakynnum borgarinnar.

Fram kom í erindi stjórnenda Hagaskóla í gær að upphaflega hefði ekki verið talið tilefni til að upplýsa alla foreldra um atvikið. Sú ákvörðun hefði hins vegar verið endurskoðuð í kjölfar fyrirspurna fjölmiðla.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab