Tíunda árið í röð á lista yfir áhrifamestu vísindamenn
Jón Atli Benediktsson, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði og fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, er tíunda árið í röð á árlegum lista greiningarfyrirtækisins Clarivate Analytics yfir áhrifamestu vísindamenn heims.
Hann nær til þess eins prósents vísindamanna innan hverrar fræðigreinar sem mest er vitnað til í vísindagreinum sem birtast í alþjóðlegum vísindatímaritum.
Fram kemur í tilkynningu að listi Clarivate hafi verið tekinn saman í aldarfjórðung og hafi grundvallast á tilvitnunum í greinar vísindamanna sem finna megi í gagnabankanum Web of Science.
„Listinn tekur til rúmlega 20 ólíkra fræðasviða og í ár eru rúmlega 7.000 vísindamenn á honum. Jón Atli er á listanum vegna framlags síns sem tengist jarðvísindum. Ástæða þess er sú að Jón Atli hefur lengi verið í hópi fremstu vísindamanna á sviði fjarkönnunar og stafrænnar myndgreiningar, sem snýst um að taka stafrænar myndir úr flugvélum, drónum og gervitunglum af yfirborði jarðar og vinna úr þeim hvers kyns upplýsingar um breytingar á jörðinni. Þær geta tengst hopun jökla, útbreiðslu eða hopun gróðurs eða dreifingu hrauns, svo dæmi séu tekin,“ segir í tilkynningunni.
„Vakin er athygli á því að stærstan hluta þess tíma sem mat Clarivate nær til gegndi Jón Atli starfi rektors Háskóla Íslands, eða frá 2015 til 2025. Hann hafði því ekki færi á að sinna rannsóknum í sama mæli og fyrr á vísindaferlinum. Það er til marks um stöðu hans sem vísindamanns í fremstu röð að hann skuli allan þennan tíma halda stöðu sinni á lista Clarivate.“
Eftir Jón Atla liggja yfir 400 fræðigreinar og bókarkaflar á sviði rafmagns- og tölvuverkfræði. Hann hefur enn fremur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín, bæði rannsóknir, nýsköpun og framlag til menntunar á sviði fjarkönnunar. Hann hefur meðal annars verið tekinn inn í Bandarísku verkfræðiakademíuna.
Pedram Ghamisi einnig á listanum
Pedram Ghamisi, sem gegnir gestastarfi sem rannsóknarprófessor við rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands, er einnig á listanum. Meginstarf hans er við Helmholz-stofnunina í Þýskalandi.
Pedram lauk doktorsprófi frá Háskóla Íslands árið 2015 undir leiðsögn Jóns Atla og rannsóknir hans liggja á mörkum fjarkönnunar og gervigreindar. Hann hefur komið að uppbyggingu samstarfsvettvanga, rannsóknahópa og nýsköpunarfyrirtækja á því sviði og verið verðlaunaður fyrir rannsóknir sínar. Pedram hefur undanfarin ár verið á lista Clarivate en rannsóknarafurðir hans eru yfir 250 talsins.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗