Sú efnilegasta skrifaði undir nýjan samning
Knattspyrnukonan Ingibjörg Magnúsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt FH.
Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum en Ingibjörg, sem er einungis 17 ára gömul, skrifaði undir tveggja ára samning sem gildir út keppnistímabilið 2028.
Hún skoraði sex mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni í sumar og var kjörin efnilegasti leikmaður deildarinnar af leikmönnum.
FH hafnaði í öðru sæti Bestu deildarinnar annað árið í röð eftir harða baráttu við Breiðablik um Íslandsmeistaratitilinn.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗