Tíu flottar jólagjafir fyrir alla fjölskylduna
Helga Dís Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri vörusviðs hjá Ísland Duty Free, segir að í ár sé vöruúrvalið í Ísland Duty Free þess eðlis að hægt sé að finna jólagjafir fyrir alla fjölskylduna. Ljósmynd/Aðsend
Jólin nálgast og mörg leggja land undir fót og ferðast til útlanda í nóvember og desember, sum til að slaka á en önnur til að kaupa jólagjafir. Í stað þess að verja tíma og stressa sig á að ná að kaupa allt er hægt að kaupa gjafirnar á Keflavíkurflugvelli. Þannig gefst meiri tími í ferðinni til að njóta og slaka á.
Helga Dís Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri vörusviðs hjá Ísland Duty Free, segir að í ár sé vöruúrvalið í Ísland Duty Free þess eðlis að hægt sé að finna jólagjafir fyrir alla fjölskylduna.
„Hvort sem leitað er að snyrtivörum, ilmvötnum, leikföngum, sælgæti eða einhverju góðu í jólapakkann þá er úrvalið í Ísland Duty Free mjög gott. Þar má bæði finna vinsælar klassískar jólagjafir og vörur sem fást á fáum eða jafnvel hvergi annars staðar á Íslandi,“ segir Helga Dís.
Hægt er að skoða allar vörur og verð á www.islanddutyfree.is en til að einfalda valið hefur Helga Dís tekið saman lista yfir tíu jólagjafir sem hún segir vera þær vinsælustu í ár.
Áður en haldið er í gegnum listann bendir Helga Dís einnig á að þeir sem eru að leita að sérlega góðum kaupum ættu að hafa augun opin fyrir „rauðu svæðunum“ í versluninni. Þar eru vörur á sérstaklega hagstæðu verði og úrvalið tekur mið af árstíðinni, þar á meðal vinsælar jólavörur og gjafahugmyndir.
1. Jólasápur og ilmkerti frá Bath & Body Works
„Jólalínan frá Bath & Body Works hefur slegið í gegn undanfarin ár. Jólasápurnar og kertin eru komin í verslunina og henta vel sem litlar jólagjafir, gestgjafagjafir eða einfaldlega til að koma rétta jólailminum inn á heimilið,“ segir Helga Dís.
Hún segir að vörurnar sé einnig hægt að fá á tilboði í versluninni: „Allar sápur fást þrjár saman á 3.990 kr. en venjulegt verð er 1.790 kr. fyrir stykkið. Tvö lítil kerti kosta 4.990 kr. í stað 3.190 kr. fyrir stykkið og tvö stór kerti kosta 6.990 kr. en venjulegt verð þeirra er 4.790 kr. fyrir stykkið þannig að það er hægt að gera mjög góð kaup,“ segir Helga Dís.
2. Frönsk lúxus-ilmkerti frá Diptyque
Ilmir eru sígild jólagjöf og fyrir þá sem vilja gefa eitthvað sem ekki fæst alls staðar er gaman að skoða úrvalið í Ísland Duty Free. „Sem dæmi þá er Diptyque franskt lúxusmerki frá París sem hefur skapað sér sérstöðu með fágaðri hönnun, ilmum og hinum þekktu ilmkertum sínum,“ segir Helga Dís.
Merkið var stofnað í Saint-Germain árið 1961 og á því yfir 60 ára sögu í ilmheiminum. „Fyrir jólin eru kertin sérstaklega falleg gjöf fyrir þá sem leita að einhverju sem er ekki fáanlegt á íslenskum markaði, en Diptyque fæst í brottfararverslun Ísland Duty Free en ekki í komuversluninni,“ bendir Helga Dís á.
Diptyque er franskt lúxusmerki frá París sem hefur skapað sér sérstöðu með fágaðri hönnun, ilmum og hinum þekktu ilmkertum sínum. Ljósmynd/Aðsend
3. Sænskir ilmir frá BYREDO
Sænska merkið BYREDO er einnig að finna í versluninni. Það var stofnað í Stokkhólmi árið 2006 og er þekkt fyrir nútímalega, mínimalíska hönnun og sérstakan ilmheim.
„Vinsælir ilmir á borð við Blanche og Bal d'Afrique gera BYREDO að sérstaklega skemmtilegri jólagjöf fyrir ilmáhugafólk,“ segir Helga Dís.
BYREDO var stofnað í Stokkhólmi árið 2006 og er þekkt fyrir nútímalega, mínimalíska hönnun og sérstakan ilmheim. Ljósmynd/Aðsend
Klassískar snyrtivörugjafir og íslenskt dekur
4. Gjafaöskjur og jóladagatöl frá Rituals
Rituals er orðið eitt af þessum vörumerkjum sem margir tengja við dekur og notalegheit, enda sameinar merkið fallega hönnun, góða ilmi og vörur fyrir bæði heimili og líkama.
„Fyrir jólin eru vinsælu gjafaöskjurnar og jóladagatölin sérstaklega skemmtileg gjöf, með fjölbreyttu úrvali í mismunandi stærðum og verðflokkum.“
Rituals er orðið eitt af þessum vörumerkjum sem margir tengja við dekur og notalegheit, enda sameinar merkið fallega hönnun, góða ilmi og vörur fyrir bæði heimili og líkama. Ljósmynd/Aðsend
5. Íslenskar jólapakkningar frá BIOEFFECT
Íslenskum vörum er gert hátt undir höfði í verslun Ísland Duty Free og fyrir þau sem vilja gefa eitthvað íslenskt er BIOEFFECT góð gjöf.
„Það er alltaf gaman að setja eitthvað íslenskt undir jólatréð og úrvalið hjá Ísland Duty Free býður upp á ýmsar skemmtilegar gjafahugmyndir. Jólapakkningarnar frá BIOEFFECT eru falleg gjöf og á sérstaklega góðu verði í versluninni,“ segir Helga Dís.
Jólapakkningarnar frá BIOEFFECT eru falleg gjöf og á sérstaklega góðu verði í Ísland Duty Free. Ljósmynd/Aðsend
6. Jóladekur frá Blue Lagoon Skin Science
„Aðventudagatalið frá Blue Lagoon Skin Science er klárlega eitt af því sem mig langar að minna á fyrir jólin,“ segir Helga Dís. Dagatalið inniheldur fjórar vandlega samsettar húðrútínur, eina fyrir hverja viku aðventunnar, með húðvörum sem byggja á BL+ lífvirkum innihaldsefnum.
„Þetta er bæði falleg gjöf og skemmtileg leið til að telja niður til jóla og gefa sér smá tíma til að hlúa að húðinni í öllu jólaamstrinu.“
Dagatalið er aðeins fáanlegt í takmörkuðu upplagi.
Aðventudagatalið frá Blue Lagoon Skin Science inniheldur fjórar vandlega samsettar húðrútínur, eina fyrir hverja viku aðventunnar, með húðvörum sem byggja á BL+ lífvirkum innihaldsefnum. Ljósmynd/Aðsend
7. Íslenskur jólailmur frá Fischersund
Sum eru jafnvel á leið til útlanda að hitta ættingja eða vini sem búa erlendis. Helga Dís segir að færa því fólki sannan íslenskan jólailm
„Jólailmurinn frá Fischersund er spennandi valkostur og skemmtileg leið til að gefa íslenska ilmupplifun í jólagjöf.“
Jólailmurinn frá Fischersund er spennandi valkostur og skemmtileg leið til að gefa íslenska ilmupplifun í jólagjöf. Ljósmynd/Aðsend
Jóladagatöl og leikföng fyrir yngri ferðalanga
Það eru ekki bara fullorðnir sem hægt er að strika af jólagjafalistanum á flugvellinum. Leikfangadeild Ísland Duty Free er sannkölluð fjársjóðskista fyrir yngri kynslóðina fyrir jólin, með skemmtilegu úrvali fyrir ólíkan aldur og áhugamál. Allt frá mjúkum leikföngum og föndursettum yfir í skapandi leikföng og sígild LEGO-sett.
„Leikfangaúrvalið hjá okkur er mjög gott og hægt að finna spennandi og vinsælar gjafir fyrir börn á öllum aldri,“ segir Helga Dís.
„Vinsælustu vörurnar okkar núna eru til dæmis Blæjuvörur og Lego.“
Leikfangadeild Ísland Duty Free er sannkölluð fjársjóðskista fyrir yngri kynslóðina fyrir jólin, með skemmtilegu úrvali fyrir ólíkan aldur og áhugamál. Ljósmynd/Aðsend
8. Blæja, Hape og skapandi leikur
Helga Dís setur því Blæjubangsa fyrir yngstu Blæju-aðdáendurna á listann yfir tíu flottar jólagjafir fyrir fjölskylduna. „Það má til dæmis finna krúttlegan Blæjubangsa á 2.190 kr. og LEGO DUPLO Blæju-fjölskylduferð á ströndina fyrir 4.490 krónur en í pakkanum fara mamma, Blæja og Bára á ströndina í bílnum,“ segir Helga Dís.
Fyrir þá sem elska ævintýraheim Disney Frozen er LEGO Disney Frozen Arendelle-kastalinn á 4.490 kr. skemmtileg gjöf sem býður upp á bæði byggingu og leik.
Einnig er að finna fjölbreytt úrval frá Hape, sem hefur notið vaxandi vinsælda undanfarin ár. Þar má finna skapandi og vönduð leikföng fyrir ólíkan aldur, allt frá hljóðfærum og þrautum yfir í leiksett sem hvetja til ímyndunarafls og lærdóms í gegnum leik.
Sérstaklega hefur Hape Pixel Piano slegið í gegn hjá yngri kynslóðinni upp á síðkastið og verið vinsæl gjöf fyrir börn sem hafa áhuga á tónlist og skapandi leik fyrir 5.790 kr.
Hape Pixel Piano hefur slegið í gegn hjá yngri kynslóðinni og verið vinsæl gjöf fyrir börn sem hafa áhuga á tónlist og skapandi leik fyrir 5.790 kr. Ljósmynd/Aðsend
Fyrir yngstu börnin er einnig hægt að finna vinsæla Chicco Sveitabæinn, gagnvirkt leikfang sem talar íslensku og kynnir börnum dýr, hljóð og orð á skemmtilegan og fræðandi hátt. Slík leikföng sameina leik og nám og hafa reynst vinsæl hjá barnafjölskyldum á jólunum.
Fyrir yngstu börnin er einnig hægt að finna vinsæla Chicco Sveitabæinn, gagnvirkt leikfang sem talar íslensku og kynnir börnum dýr, hljóð og orð á skemmtilegan og fræðandi hátt. Ljósmynd/Aðsend
9. Föndursett
Skapandi krakkar fá líka sitt með föndursettum frá Avenir, til dæmis útsaums- og þræðasettum á 2.390 kr. auk ferðavæns Aquadoodle-teiknisetts frá Ravensburger á 4.190 kr. „Fyrir aðeins eldri krakka sem hafa gaman af sköpun og fallegu handverki fæst einnig skrautskriftarsett frá Faber-Castell á 4.190 kr.,“ segir Helga Dís.
Hún nefnir einnig að eigi fólk leið um flughöfnina í lok mánaðar sé skemmtileg leið til að telja niður til jólanna að kaupa Lego-dagatal fyrir krakkana.
„Við munum öll eftir súkkulaðidagatölunum en í dag vilja sumir foreldrar frekar gefa börnunum sínum heilsusamlegri dagatöl og þá er Lego-jóladagatalið mjög spennandi kostur,“ segir Helga Dís.
Skapandi krakkar fá líka sitt í Ísland Duty Free með föndursettum frá Avenir og skrautskriftarsetti frá Faber-Castell. Ljósmynd/Aðsend
Fyrir sælkerana
10. Bandaríska M&M-úrvalið
Jól og sælgæti haldast auðvitað í hendur. Bandaríska M&M-úrvalið hefur notið mikilla vinsælda hjá viðskiptavinum Ísland Duty Free og þar er hægt að finna vörur sem eru skemmtilegar bæði í jólapakka og til að eiga yfir hátíðarnar. Einnig eru Kinder-vörurnar sívinsæll kostur hjá bæði börnum og fullorðnum, hvort sem um er að ræða klassískt Kinder-súkkulaði, Kinder Bueno eða aðrar vinsælar tegundir.
„Hvort sem fólk vill M&M með hnetum eða M&M fyllt með hnetusmjöri, nú eða þetta hefðbundna mjólkursúkkulaði M&M, þá eru vörur frá M&M alltaf á mjög góðu verði hjá okkur enda klassískt sælgæti sem klikkar ekki,“ segir Helga Dís.
Bandaríska M&M-úrvalið hefur notið mikilla vinsælda hjá viðskiptavinum Ísland Duty Free og þar er hægt að finna vörur sem eru skemmtilegar bæði í jólapakka og til að eiga yfir hátíðarnar. Ljósmynd/Aðsend
Rauðu svæðin vísa á góðu kaupin
Þeir sem hafa komið í Ísland Duty Free nýlega vita eflaust af „rauðu svæðunum“ í versluninni. „Fyrir þau sem ekki þekkja til þá eru vörur sem eru á sérstaklega góðu tilboði á þessum svæðum og því borgar sig að líta við þar áður en haldið er áfram í gegnum flugstöðina,“ segir Helga Dís. Í aðdraganda jólanna taki úrvalið auðvitað mið af árstíðinni og er jólabjórinn til að mynda alltaf vinsæll á þessum tíma en í versluninni má finna gott úrval á hagstæðu verði.
Á Rauðu svæðunum í Ísland Duty Free eru vörur sem eru á sérstaklega góðu tilboði og því borgar sig að líta við þar áður en haldið er áfram í gegnum flugstöðina. Ljósmynd/Aðsend
Fyrir þá sem eiga leið um Keflavíkurflugvöll fyrir jólin getur verið vel þess virði að skoða vefsíðuna, vöruúrvalið og verð og skilja svo eftir smá pláss í töskunni og tíma fyrir Ísland Duty Free.
„Hvort sem það er jólakerti fyrir vinkonuna, BIOEFFECT-pakki fyrir mömmu, LEGO-jóladagatal fyrir yngsta fjölskyldumeðliminn eða íslenskur ilmur fyrir þann sem á allt, þá ættu flestir að geta fundið eitthvað skemmtilegt undir tréð,“ segir Helga Dís.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/32/1693258.jpg)












