Leiðtogafundur hafinn: „Ættum að læra af sögunni“
Leiðtogafundur Xi Jinping, forseta Kína, Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta og Donalds Trumps Bandaríkjaforseta er hafinn í Shenzhen í suðurhluta Kína.
Xi lagði við upphaf fundarins áherslu á að ríkin þrjú ættu að „vinna saman að því að takast á við hnattrænar áskoranir“.
„Við ættum að læra af sögunni,“ sagði hann, að því er BBC greindi frá. „Mótlæti leiðir í ljós hina raunverulegu ábyrgð.“
Sameiginlegra hagsmuna að gæta
Vladímír Pútín sagði að ríkin þrjú ættu sameiginlegra „hagsmuna“ að gæta af því að binda enda á stríðið í Úkraínu og bæru „ábyrgð“ á friði og öryggi í heiminum.
„Ríki okkar eiga marga sameiginlega hagsmuni þegar kemur að lausn svæðisbundinna átaka, þar á meðal að sjálfsögðu átakanna í Úkraínu,“ sagði Pútín í opnunarávarpi sínu á tímamótafundi leiðtoganna þriggja í Shenzhen.
Hann bætti við að þeir bæru „sameiginlega ábyrgð á því að viðhalda friði og öryggi á alþjóðavettvangi“ og að í viðræðum fyrir luktum dyrum yrði einnig fjallað um fæðu- og orkuöryggi en hvort tveggja hefur raskast verulega vegna stríðanna í Íran og Úkraínu.
Í einstakri stöðu til að ræða fækkun kjarnavopna
Bandaríkin, Rússland og Kína eru „í einstakri stöðu“ til að ræða fækkun kjarnavopna í vopnabúrum sínum, sagði Donald Trump við upphaf fundarins.
„Sem þrjú langstærstu kjarnorkuveldi heims eru Bandaríkin, Rússland og Kína í einstakri stöðu til að ræða hvernig fækka megi kjarnavopnum á jörðinni og jafnframt draga úr hættunni á að þeim vopnum verði nokkurn tíma beitt,“ sagði Trump, en bætti þó við að fækkun þeirra væri „mjög erfitt verkefni“.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

