Leiðtogafundur hafinn: „Ættum að læra af sögunni“

Pútín, Xi og Trump á leið á fundinn í morgun.

Pútín, Xi og Trump á leið á fundinn í morgun. AFP/Win McNamee

Leiðtogafundur Xi Jinping, forseta Kína, Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta og Donalds Trumps Bandaríkjaforseta er hafinn í Shenzhen í suðurhluta Kína.

Xi lagði við upphaf fundarins áherslu á að ríkin þrjú ættu að „vinna saman að því að takast á við hnattrænar áskoranir“.

„Við ættum að læra af sögunni,“ sagði hann, að því er BBC greindi frá. „Mótlæti leiðir í ljós hina raunverulegu ábyrgð.“

Leiðtogarnir þrír.

Leiðtogarnir þrír. AFP/Doug Mills

Sameiginlegra hagsmuna að gæta

Vladímír Pútín sagði að ríkin þrjú ættu sameiginlegra „hagsmuna“ að gæta af því að binda enda á stríðið í Úkraínu og bæru „ábyrgð“ á friði og öryggi í heiminum.

„Ríki okkar eiga marga sameiginlega hagsmuni þegar kemur að lausn svæðisbundinna átaka, þar á meðal að sjálfsögðu átakanna í Úkraínu,“ sagði Pútín í opnunarávarpi sínu á tímamótafundi leiðtoganna þriggja í Shenzhen.

Hann bætti við að þeir bæru „sameiginlega ábyrgð á því að viðhalda friði og öryggi á alþjóðavettvangi“ og að í viðræðum fyrir luktum dyrum yrði einnig fjallað um fæðu- og orkuöryggi en hvort tveggja hefur raskast verulega vegna stríðanna í Íran og Úkraínu.

AFP/Mandel Ngan

Í einstakri stöðu til að ræða fækkun kjarnavopna

Bandaríkin, Rússland og Kína eru „í einstakri stöðu“ til að ræða fækkun kjarnavopna í vopnabúrum sínum, sagði Donald Trump við upphaf fundarins.

„Sem þrjú langstærstu kjarnorkuveldi heims eru Bandaríkin, Rússland og Kína í einstakri stöðu til að ræða hvernig fækka megi kjarnavopnum á jörðinni og jafnframt draga úr hættunni á að þeim vopnum verði nokkurn tíma beitt,“ sagði Trump, en bætti þó við að fækkun þeirra væri „mjög erfitt verkefni“.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab