Vara við frostrigningu og flughálku
Innlent | mbl | 19.11.2026 | 8:32
Á höfuðborgarsvæðinu og þar í kring er varað við mögulegri frostrigningu og flughálku henni samfara um miðjan daginn í dag.
Einnig er varað við þessum aðstæðum nærri Selfossi og í lágsveitum Suðurlands. Þar er búist við þeim fyrr eða um og rétt fyrir hádegi, að því er kemur fram í ábendingu til vegfarenda frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗