Sjö mánuði tæki að selja allar íbúðirnar
Tæplega sjö þúsund íbúðir eru nú til sölu á landsvísu og um sjö mánuði tæki að selja allar íbúðir sem eru til sölu á höfuðborgarsvæðinu miðað við söluhraða síðustu mánaða.
Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu HMS.
Í september var 851 kaupsamningi um íbúðarhúsnæði þinglýst, þar af 589 á höfuðborgarsvæðinu. Kaupsamningar í september voru þannig rúmlega 14% færri samanborið við sama mánuð í fyrra á landsvísu, en á höfuðborgarsvæðinu voru þeir um 7% færri.
Hlutfallslega fleiri undir auglýstu söluverði
Fasteignamarkaðurinn er áfram í lægð, en virkni markaðarins á fyrstu níu mánuðum ársins er svipuð og á árinu 2023 þegar tekið er tillit til stærðar íbúðastokksins.
„Hlutfallslega fleiri íbúðir hafa selst undir auglýstu söluverði á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu, en ólíklegra er að nýjar íbúðir seljist með þeim hætti. Fyrstu kaupendur hafa verið ólíklegri en aðrir kaupendur til þess að kaupa íbúðir undir auglýstu söluverði undanfarin ár og á tímabilinu 2020 til 2025 voru þeir jafnframt líklegri en aðrir kaupendur til að kaupa íbúðir yfir auglýstu söluverði,“ segir í tilkynningu.
Lánamarkaðurinn gæti tekið breytingum
Fram kemur að leigumarkaðurinn telji allt að 48 þúsund heimili í ár. Hlutdeildarlán hafi aðstoðað fyrrum leigjendur við að komast af leigumarkaði í eigið húsnæði, en samkvæmt gögnum HMS höfðu viðtakendur um það bil fjögurra af hverjum tíu hlutdeildarlánum verið á leigumarkaði fyrir veitingu hlutdeildarláns.
„Lánamarkaðurinn gæti tekið breytingum á næstunni verði frumvarpsdrög fjármála- og efnahagsráðuneytisins að lögum. Drögin kveða á um að hámarkslánstími verðtryggðra íbúðalána verði almennt 25 ár. Breytingarnar myndu takmarka val lántakenda en ættu þó ekki að skerða aðgengi að íbúðamarkaði þar sem reglur Seðlabankans um greiðslubyrði miða nú þegar við 25 ára hámarkslánstíma verðtryggðra lána,“ segir einnig í tilkynningunni.
Aukin ásókn í óverðtryggð lán
Þar segir einnig að ásókn í óverðtryggð íbúðalán hafi aukist á árinu á sama tíma og samhengið á milli verðtryggðra vaxta og óverðtryggðra raunvaxta hafi breyst. Breytilegir raunvextir óverðtryggðra íbúðalána séu nú lægri en breytilegir verðtryggðir vextir, sem sé viðsnúningur frá árunum 2024 og 2025 þegar þeir voru alla jafna hærri.
Fram kemur einnig að byggingarmarkaðurinn hafi verið afkastaminni en undanfarin ár, einkum á höfuðborgarsvæðinu. Nýjar fullbúnar íbúðir á landsvísu á fyrstu tíu mánuðum ársins voru rúmlega 13% færri en í fyrra.
„Sala á sementi hefur dregist saman undanfarin misseri sem getur verið vísbending um samdrátt í umfangi byggingarframkvæmda til næstu ára, þar á meðal umfangi íbúðauppbyggingar. Það er í samræmi við niðurstöður septembertalningar HMS á íbúðum í byggingu, þar sem meðal annars kom fram að nýjum framkvæmdum á milli talninga hefði fækkað verulega og að horfur um íbúðauppbyggingu til næstu ára hefðu versnað samkvæmt spá HMS.“
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
