„Það er verið að borga fólki fyrir að segja sína skoðun“
Brynjólfur Andersen Willumsson og Ísak Bergmann Jóhannesson fagna marki þess fyrrnefnda á Laugardalsvelli á mánudaginn. mbl.is/Eggert Jóhannesson
„Þeir verða að gera sér grein fyrir því að það er verið að borga fólki fyrir að segja sína skoðun á hlutunum,“ sagði fyrrverandi knattspyrnu- og landsliðsmaðurinn Kári Árnason í samtali við mbl.is.
Leikmenn íslenska landsliðsins höfðu orð á því eftir 5:0-sigurinn gegn Búlgaríu á dögunum og fyrir leikinn gegn Lúxemborg að þegar liðið ynni væru andstæðingarnir sagðir ekki nógu góðir, en ef það tapaði væri allt á leiðinni til fjandans.
Kári segir að leikmenn íslenska landsliðsins verði að þola gagnrýni en hann lék alls 90 A-landsleiki, skoraði í þeim sex mörk og var í lykilhlutverki í gullaldarliði landsliðsins sem fór á tvö stórmót, EM 2016 í Frakklandi og HM 2018 í Rússlandi.
Mega ekki vera litlir í sér
„Menn mega ekki vera litlir í sér þegar þeir eru gagnrýndir. Þú ert að spila fyrir A-landslið Íslands og ef það gengur ekki vel verður maður að setja smá hita á menn svo þeir reyni að standa sig. Þeir hafa gert það, en þessi umræða eftir Búlgaríuleikinn átti fullan rétt á sér,“ sagði Kári.
Ísland vann Búlgaríu 5:0 í Plovdiv og Lúxemborg 3:0 á Laugardalsvelli en með sigrunum tryggði liðið sér efsta sæti 4. riðils C-deildar Þjóðadeildarinnar og sæti í B-deildinni á næsta tímabili.
Ákveðið sjokk
„Það var ákveðið sjokk hversu slakt búlgarska liðið var. Við getum vissulega ekki valið okkur andstæðinga, ég átta mig á því, en það má samt alveg ræða það að þeir eru ekki á sama stað og þegar þeir voru upp á sitt besta.
Ég skil samt líka að leikmönnum liðsins líði þannig að ekkert sé nógu gott, það er hluti af þessu. Við tókumst vel á við C-deildina og erum komnir í B-deildina núna. Þá fyrst fer að verða alvöru afrek að vinna leiki. Við viljum sjá liðið reyna sig gegn sterkari mótherjum og sjá úr hverju menn eru gerðir,“ sagði Kári.
Ítarlegt viðtal við Kára Árnason má sjá á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗