Þekkt sjónvarpskona varar við svikara sem þykist vera hún - Svona blekkir hann fólk

Ellie Collins, 26 ára sjónvarpskona sem hefur meðal annars starfað við umfjöllun um ensku úrvalsdeildina, hefur varað við svikara sem hefur þóst vera hún á samskiptaforritinu WhatsApp.

Collins, sem er með yfir 58 þúsund fylgjendur á Instagram, greindi frá því að óprúttinn aðili hefði notað nafn hennar og mynd til að senda skilaboð til þekktra íþróttamanna.

„Ég vil vekja athygli á því að einhver hefur verið að þykjast vera ég á WhatsApp og senda skilaboð til þekktra íþróttamanna í mínu nafni,“ sagði Collins.

Hún segir þetta hafa staðið yfir með hléum í nokkra mánuði og að tilfellunum hafi fjölgað að undanförnu.

„Ég hef tilkynnt þetta til lögreglunnar og hún bað mig um að vekja athygli á málinu.“

Collins hvetur fólk sem fær grunsamleg skilaboð í hennar nafni til að hafa samband við sig á Instagram.

Hún hefur starfað við útsendingar frá ensku úrvalsdeildinni frá árinu 2022 og tekið viðtöl við stjörnur á borð við Bruno Fernandes, Andy Robertson og John Terry.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab