Hvalur velti sér í flæðarmálinu í Þykkvabæjarfjöru

Á myndskeiði Fanneyjar Hrundar Hilmarsdóttur má sjá hvalina synda alveg upp að fjöruborðinu. Samsett mynd/Instagram

Fanney Hrund Hilmarsdóttir, lögfræðingur og rithöfundur, var á göngu með fjölskyldu sinni í Þykkvabæjarfjöru þegar þau sáu hval velta sér í flæðarmálinu skammt frá.

Fanney birti myndskeið frá fjöruferðinni á Instagram þar sem sjá má hversu nærri landi hvalurinn syndir.

„Í mínum kokkabókum eru það forréttindi að búa á stað eins og okkar – í svo miklum tengslum við náttúruna. Ættu helst ekki að flokkast sem forréttindi heldur frekar grunnþörf,“ skrifar Fanney við myndskeiðið.

Hún beinir jafnframt spurningu til lesenda: „Getum við reynt að standa okkur aðeins betur svo börn framtíðarinnar geti líka hlaupið í fjörunni við hlið hnúfubaks?“

Myndskeiðið hefur vakið talsverða athygli og hafa rúmlega 2.200 manns líkað við það. Einn netverji segist aldrei hafa ímyndað sér að hvalur gæti synt svona nálægt landi. Honum þykir myndskeiðið jafnframt minna á hversu snögglega getur dýpkað við ströndina og hættuna sem fylgir óvæntum öldum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab