Forstjóri Kviku sendir stjórnvöldum tóninn - Varar við því að kjör íslenskra heimila geti versnað

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka, segir stjórnvöld senda þau skilaboð til smærri fjármálafyrirtækja að þeim verði refsað fyrir að ná árangri og veita stóru viðskiptabönkunum samkeppni.

Í pistli í Morgunblaðinu gagnrýnir Ármann harðlega fyrirhugaða hækkun bankaskatts og bendir á að upphaflegur tilgangur skattlagningarinnar hafi verið að skattleggja stóru viðskiptabankana þrjá en ekki smærri lánastofnanir.

„Skilaboðin til smærri aðila, sem etja vilja kappi við risana og auka samkeppni, virðast því vera þessi: Ef þið náið árangri munu kvaðir, álögur og skattar aukast. Slík skilaboð munu á endanum skila sér í minnkandi frumkvæði og minni samkeppni á markaði.“

Ármann bendir á að innreið Auðar á sparnaðarinnlánamarkað árið 2019 hafi knúið stóru bankana til að bæta kjör sparifjáreigenda. Þannig hafi aukin samkeppni skilað tugum milljarða króna úr bankakerfinu til íslenskra heimila.

Takmarkað svigrúm

Ármann segir að fyrirhuguð skattahækkun geti haft mun víðtækari áhrif en eingöngu á viðskiptavini Kviku.

„Kvika býður neytendum sparnaðarinnlán og íbúðalán hjá Auði með lágmarksvaxtamun, sem er mun minni en meðaltalsvaxtamunur stóru bankanna, og hefur því takmarkað svigrúm til að mæta aukinni skattlagningu án þess að hún hafi áhrif á kjör viðskiptavina.“

Ármann segir að fyrirhuguð hækkun bankaskatts hafi meðal annars verið rökstudd með auknum hagnaði banka vegna verðbólgu. Þau rök eigi hins vegar ekki við um Kviku og fremur megi færa rök fyrir því að bankinn hafi tapað á mikilli verðbólgu en hagnast.

Hann segir eðlilegt að skattlagningin beinist að þeim bönkum sem raunverulega hafi hagnast á mikilli verðbólgu í stað þess að leggja auknar álögur á minni banka sem ætlað sé að veita þeim stærri aðhald.

Talið eitt

Ármann bendir á að frímark bankaskattsins hafi staðið óbreytt í 50 milljörðum króna í þrettán ár. Miðað við þróun landsframleiðslu á tímabilinu samsvari upphaflega frímarkið, að hans sögn, rúmlega 130 milljörðum króna í dag.

„Aukin skattlagning mun því draga úr því samkeppnislega aðhaldi sem Kvika veitir stóru bönkunum og þannig hafa mun víðtækari neikvæð áhrif á neytendur en sem nemur áhrifunum á viðskiptavini Kviku.“

Ármann vandar stjórnvöldum ekki kveðjurnar í lok pistilsins.

„Ef lög um hærri bankaskatt verða samþykkt í núverandi mynd og án þess að frímarkið verði hækkað til að koma til móts við smærri fjármálafyrirtæki eins og Kviku er í mínum huga allt tal stjórnarliða, og þeirra alþingismanna sem styðja það, um mikilvægi samkeppni, nákvæmlega það – talið eitt.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab