Menningin tæklar jólabókaflóðið

María Margrét Jóhannsdóttir, Ragnheiður Birgisdóttir, Silja og Anna Rún Frímannsdóttir stýra pallborðum ásamt Árna Matthíassyni. mbl.is/Karítas

„Samtal um bækur skiptir miklu máli og með þessari dagskrá viljum við leggja okkar af mörkum,“ segir Silja Björk Huldudóttir, fréttastjóri menningar Morgunblaðsins, um dagskrá deildarinnar sem fram fer í Rímu Hörpu á Bókahátíð laugardaginn 21. nóvember kl. 13-16.

„Við sem störfum á menningardeildinni höfum sett saman sex spennandi pallborð þar sem rætt verður við 17 höfunda, þvert á greinar, sem býður upp á ný og óvænt sjónarhorn í samræðunum. Meðal þess sem sjónum er beint að er húsið sem örlagavaldur, hryllingsbókmenntir, fólk í krísu og ástin í víðu samhengi.“

Meðal þeirra höfunda sem taka þátt eru Auður Ava Ólafsdóttir, Brynja Hjálmsdóttir, Einar Lövdahl, Gunnar Helgason, Jón Kalman Stefánsson og María Elísabet Bragadóttir.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab