„Þessi Valsgrýla situr alveg ennþá í manni“
„Það var mjög erfið ákvörðun að yfirgefa uppeldisfélagið og vinkonur sínar en ég fann að mig langaði í eitthvað meira,“ sagði handboltakonan fyrrverandi Sunna Jónsdóttir í Dagmálum.
Sunna, sem er 37 ára gömul, lagði skóna á hilluna á dögunum eftir 20 ár í meistaraflokki en hún lék einnig í Svíþjóð og Noregi á atvinnumannaferlinum.
Erfitt að segja nei
Sunna gekk til liðs við Fram frá uppeldisfélagi sínu Fylki árið 2011 og varð Íslandsmeistari með liðinu tveimur árum síðar.
„Það var erfitt að segja nei við félag sem var búið að vera á toppnum öll þessu ár og mig langaði líka til þess að vinna titilinn,“ sagði Sunna.
„Það var algjör Valsgrýla í Fram á þessum tíma og þessi Valsgrýla situr alveg ennþá í manni. Ætli það hafi ekki verið kjörið að enda ferilinn með tapi á móti Val. Maður segir alltaf að maður hati Val en þeir hafa gert þetta ótrúlega vel.
Maður þolir samt ekki Val, þeir eru erfiðir af því að þeir eru bestir,“ sagði Sunna meðal annars.
Viðtalið við Sunnu í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗