Víða ísstíflur á norðanverðu landinu
Innlent | mbl | 19.11.2026 | 7:53
Undanfarna daga hefur verið talsvert frost á norðanverðu landinu. Þetta hefur haft í för með sér ísstíflumyndun víða í ám sem getur valdið staðbundnum flóðum þar sem vatn kemst ekki leiðar sinnar heldur byggist upp.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Veðurstofu Íslands.
Þar er fólk beðið um að sýna aðgát við árbakka og að það tilkynni Veðurstofu verði það vart við ísstíflur og sérstaklega staðbundin flóð.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗