Skýjakljúfur í Sádi-Arabíu skemmdist eftir árás
Skýjakljúfur í Riyadh, þar sem höfuðstöðvar þjóðarsjóðs Sádi-Arabíu eru til húsa, skemmdist í morgun, að sögn sjónarvotta sem ræddu við AFP, í kjölfar árása Húta í Jemen á konungsríkið sem hafa staðið yfir undanfarnar vikur.
„Framhliðin er skemmd á nokkrum hæðum og rúður hafa sprungið út,“ sagði heimildarmaður sem óskaði nafnleyndar í samtali við AFP.
Tveir aðrir heimildarmenn staðfestu skemmdirnar á byggingunni, sem er 80 hæðir og hæsti turninn í fjármálahverfi Riyadh.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/33/1693306.jpg)