Gerðu aðra árás á Krímskagabrúna
Árás var gerð á brúna sem tengir Krímskaga við Rússland í gærkvöldi, að sögn embættismanns. Þetta er í þriðja sinn í þessari viku sem Úkraína ræðst á þessa mikilvægu samgönguæð.
„Í kjölfar nýrrar árásar á Krímskagabrúna hefur umferð verið stöðvuð tímabundið. Allir viðeigandi þjónustuaðilar eru á vettvangi og að störfum. Verið er að meta tjónið,“ skrifaði Sergei Aksjonov, leiðtogi Krímskaga sem skipaður er af stjórnvöldum í Moskvu, á Telegram-reikning sinn.
Segja engan hafa meiðst
Rússneska samgönguráðuneytið sagði í morgun að enginn hefði meiðst í árásinni og að lestarumferð yfir brúna hefði verið stöðvuð.
Árásin var gerð aðeins nokkrum klukkustundum fyrir fund Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta með kínverskum og bandarískum starfsbræðrum sínum, Xi Jinping og Donald Trump, í Kína.
Brúin hefur verið mikilvægt táknrænt skotmark Úkraínu allt frá því að Rússar hófu innrás sína í febrúar 2022.
Á þriðjudag gerði Úkraína árás á brúna með flugskeytum og drónum, degi eftir að hún gerði aðra árás á þessa mikilvægu samgönguleið.
Úkraínska öryggisþjónustan SBU sagði að einn af málmbogum brúarinnar „og vegarhlutinn undir honum hefðu gjöreyðilagst“.
Rússneska samgönguráðuneytið sagði að lestarumferð yfir brúna hefði hafist á ný „á einu spori“ en að viðgerðir stæðu yfir „á seinni hlutanum“ eftir þá árás.
Tákn um valdatíð Pútíns
Brúin er talin tákn um valdatíð Pútíns og innlimun Rússa á Krímskaga og gegnir hlutverki mikilvægrar birgðaleiðar fyrir svæðið.
Ráðist hefur verið á hana nokkrum sinnum, meðal annars í sprengingu í október 2022 þegar flutningabíll hlaðinn sprengiefni var sprengdur á brúnni, sem olli truflunum mánuðum saman.
Rússar innlimuðu Krímskaga árið 2014, sem var eitt af fyrstu skrefunum í því sem varð að mannskæðu stríði milli stjórnvalda í Kænugarði og aðskilnaðarsinna, studdra af Rússum, í austurhluta landsins.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

