Zaha gæti snúið aftur til Crystal Palace
Wilfried Zaha, fyrrverandi leikmaður Crystal Palace, gæti verið á leið aftur til félagsins eftir að hafa æft með liðinu að undanförnu.
Zaha, sem er 34 ára, hefur verið án félags síðan samningur hans við tyrkneska stórliðið Galatasaray rann út í sumar.
Samkvæmt Talksport hefur Fílabeinsstrendingurinn æft með Palace og kemur til greina að ganga aftur til liðs við félagið.
Zaha er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Palace eftir langa og farsæla dvöl hjá félaginu, þar sem hann var einn mikilvægasti leikmaður liðsins um árabil.
Ekki liggur fyrir hvort honum verði boðinn samningur, en endurkoma hans á Selhurst Park gæti verið í kortunum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗