Ragnhildur lýsir háttsemi sem grefur undan sjálfstrausti þolanda: „Allir eru sammála mér“
Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu hennar. Í þeim nýjasta fjallar Ragga um gaslýsingu (e. gaslighting) sem er ákveðin tegund af andlegu ofbeldi. Gaslýsing felst í því að veruleiki þolanda er ítrekað dreginn í efa með það að markmiði að grafa undan sjálfstrausti þolanda.
„Gaslýsing er mest skemmandi útgáfa af tilfinningalegu ofbeldi. Þolandi gaslýsingar verður ruglaður í ríminu, efast um eigin upplifanir, tilfinningar og minningar, jafnvel eigin geðheilsu,“ segir Ragga, og segir að markmiðið er að stýra, stjórna og smætta þolandann.
„Gaslýsendur nota ákveðna frasa til að búa til sínar eigin söguskýringar.
„Það gerðist aldrei“
„Allir eru sammála mér“
„Þú ert að misskilja“
„Þú ert alltaf svo dramatísk“
„Þú ert svo viðkvæmur. Díses, reyndu að komast yfir þetta“
„Ég var bara að djóka... má bara ekkert segja við þig“
„Nú ertu að bregðast alltof harkalega við enn og aftur“
„Þú ert greinilega ekki í jafnvægi, ættir að leita þér hjálpar“
Ragga segir að sú háttsemi að „skýla sér bak við brandara eins og ferðamaður í norðanátt í strætóskýli er normalísering á gaslýsingu. Að planta fræjum um efasemdir um eigin geðheilsu er stjórnunartæki ofbeldis. Að telja þér trú um að annað hafi verið sagt eða gert er sögufölsun í hag gaslýsandans.“
Mynd: Ragga nagli.
„Gaslýsing telur þér trú um að þínar tilfinningar og viðbrögð séu vandamálið, en ekki hegðun og framkoma gaslýsandans,“ segir Ragga, og bætir við að besta ráðið er að standa fast á sínu og treysta á að fyrstu viðbrögð séu eðlileg og rétt:
„Ég er ekki að hlægja, því mér finnst þetta ekki fyndið“
„Ég hef rétt á að bregðast svona við þegar mér finnst að mér vegið“
„Ég vil að þú virðir mín viðbrögð, þau eru ekki dramatísk að mínu mati“
„Ég vil ekki að þú grínist á þennan hátt við mig aftur“
„Ég vil eiga samskipti sem byggjast á gagnkvæmri virðingu“
„Ég man þetta öðruvísi en þú“
„Við erum greinilega ósammála um hvað gerðist”
„Þó allir séu sammála þér, þýðir ekki að mín skoðun eigi ekki rétt á sér“
„Ekki segja mér hvernig mér á að líða með þetta“
Ragga bendir á að gaslýsingar geta gerst í öllum samböndum, ekki bara ástarsamböndum.
Foreldrar geta gaslýst þig.
Vinir geta gaslýst þig.
Systkini þín geta gaslýst þig.
Yfirmaður getur gaslýst þig.
Samstarfsfélagi getur gaslýst þig.
Ragga spyr að lokum: „Hefur þú lent í gaslýsingu?“
Bæta má við spurningunni: „Hefur þú gaslýst aðra?“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗