Laura hvarf þegar hún var þriggja ára: Rúmum 40 árum síðar hófst ný martröð hjá fjölskyldunni
Í rúm fjörutíu ár hefur Mike Bradbury þurft að lifa með þeirri sorg að þriggja ára dóttir hans, Laura, hvarf sporlaust í fjölskylduferðalagi árið 1984. Þrátt fyrir umfangsmikla leit fannst stúlkan aldrei á lífi og DNA-rannsóknir bentu síðar sterklega til þess að höfuðkúpubrot sem fannst í eyðimörkinni væri úr henni.
Nú hefur óvænt atburðarás rifjað upp sárustu minningar fjölskyldunnar. Kona hefur ítrekað komið að heimili Mike og fullyrt að hún sé Laura, dóttirin sem hann missti fyrir rúmum 40 árum.
Bandaríska dagblaðið Los Angeles Times fjallar ítarlega um þetta óvenjulega mál og ræddi meðal annars við konuna, fjölskylduna og fólk sem þekkir til fortíðar hennar.
Hvarf sporlaust
Laura Bradbury hvarf 18. október 1984 þegar fjölskyldan var í útilegu á Indian Cove-tjaldsvæðinu í Joshua Tree í Kaliforníu.
Faðir hennar var að setja upp tjald þegar átta ára bróðir hennar, Travis, fór á færanlegt salerni. Laura elti hann en þegar drengurinn kom út var litla systir hans horfin.
Við tók umfangsmikil leit með sporhundum, hestum og þyrlum. Fjölskyldan dreifði auglýsingabæklingum í þúsundatali og Laura varð eitt fyrstu týndu barnanna í Bandaríkjunum sem myndir voru birtar af á mjólkurfernum.
Lögregla taldi á sínum tíma mögulegt að henni hefði verið rænt. Grunur beindist meðal annars að óþekktum manni á bláum Ford Econoline-sendibíl sem sést hafði á svæðinu. Fótspor sem talin voru vera stúlkunnar fundust og lágu að staðnum þar sem bíllinn hafði staðið. Enginn varð þó vitni að mannráninu og aldrei tókst að upplýsa hvað gerðist.
Mike neitaði að gefast upp og réð meðal annars einkaspæjara til að rannsaka hvarfið.
Árið 1986 fundust leifar af höfuðkúpu barns skammt frá tjaldsvæðinu. DNA-rannsóknir leiddu síðar í ljós að yfir 99 prósenta líkur væru á að beinin væru úr barni Bradbury-hjónanna. Frekari rannsókn árið 2010 staðfesti að beinin væru úr Lauru.
Kallar hann pabba og neitar að gefast upp
Konan sem nú segist vera Laura heitir samkvæmt opinberum gögnum Cindy Rae Enders.
Hún hefur ítrekað heimsótt heimili Mike, sem er orðinn 83 ára og að mestu rúmliggjandi. Hún kallar hann föður sinn og ekur um á bíl með einkamerkingunni LANNB, sem vísar til nafnsins Laura Ann Bradbury.
Enders hefur jafnframt látið húðflúra nafnið og fæðingarár Lauru á fótlegg sinn.
Hún segist hafa alist upp við ofbeldi og óstöðugleika. Maðurinn sem hún taldi vera föður sinn hafi síðar játað á dánarbeði að hún væri ekki dóttir hans og sagt henni að leita að manni að nafni Mike.
Enders segist í kjölfarið hafa lagst í rannsóknarvinnu um mál týndra barna og komist að þeirri niðurstöðu að hún væri Laura Bradbury.
Fjölskyldan hefur hins vegar miklar efasemdir um frásögn hennar.
Meðal annars bendir hún á að Enders sé bláeygð en Laura hafi verið með brún augu. Þá segir fæðingarvottorð Enders að hún hafi fæðst árið 1982, ári síðar en Laura.
Fjölskyldan hefur óskað eftir DNA-rannsókn en Enders hefur hafnað því að gangast undir hana nema að uppfylltum ákveðnum forsendum. Hún segist reiðubúin að gangast undir próf á rannsóknarstofu, að því gefnu að niðurstöðurnar séu tækar sem sönnunargögn fyrir dómi.
Örmagna af áganginum
Aðstandendur Bradbury-fjölskyldunnar segja heimsóknir Enders hafa valdið miklu álagi. Hún leggi stundum bílnum sínum nálægt húsinu og sitji þar lengi eða aki fram hjá með tónlist í gangi.
Keith Hank, sambýlismaður Emily, yngri systur Lauru, segist ítrekað hafa haft samband við lögreglu vegna málsins. Enders hafnar því að vera að særa fjölskylduna og segist einfaldlega vilja hitta föður sinn.
„Hvað ætlist þið til að ég geri? Sitji hinum megin í bænum vitandi að faðir minn er svona nálægt?“ segir hún.
Fyrir fjölskylduna er málið hins vegar enn einn sársaukafulli kaflinn í áratugalöngum harmleik. Hún sé orðin örmagna af áganginum og vilji fá að vera í friði.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗