Flick vill hvorki Van Dijk né Bruno Fernandes til Barcelona

Hansi Flick, knattspyrnustjóri Barcelona, hefur hafnað hugmyndum um að fá Virgil van Dijk, varnarmann Liverpool, og Bruno Fernandes, fyrirliða Manchester United, til félagsins.

Samkvæmt katalónska miðlinum El Nacional er ástæðan aldur leikmannanna, en Van Dijk er 35 ára og Fernandes 32 ára.

Báðir hafa verið orðaðir við Barcelona en Flick telur að félagið eigi frekar að horfa til yngri leikmanna sem geta verið hluti af framtíðaráformum þess.

Van Dijk hefur verið einn besti miðvörður ensku úrvalsdeildarinnar undanfarin ár á meðan Fernandes hefur verið lykilmaður Manchester United frá komu sinni til félagsins árið 2020.

Þrátt fyrir reynslu þeirra og gæði virðist Flick ekki hafa áhuga á að fá þá til Katalóníu.

Barcelona ætlar þess í stað að einbeita sér að öðrum kostum á félagaskiptamarkaðnum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab