108 mál skráð: Líkamsárás í miðbænum

Lögreglan sinnti ýmsum verkefnum á vaktinni.

Lögreglan sinnti ýmsum verkefnum á vaktinni. mbl.is/Ólafur Árdal

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur.

Málið er í rannsókn, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. Alls eru 108 mál skráð í kerfi lögreglunnar á umræddu tímabili. 

Tilkynnt var um grunsamlegar mannaferðir í Hlíðahverfinu. Haft var upp á einstaklingum og upplýsingar teknar.

Lögreglan að störfum.

Undir áhrifum og próflaus

Í sama hverfi var ökumaður stöðvaður undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann var einnig próflaus og þá fannst smáræði af fíkniefnum á honum. Hann var fluttur á lögreglustöð til frekari úrvinnslu málsins.

Tilkynnt var um partíhávaða í miðbæ Reykjavíkur og einnig í umdæmi lögreglunnar sem annast verkefni í Kópavogi og Breiðholti.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab