Trump: Bandaríkin og Kína vilja hjálpa til

Trump og Xi.

Trump og Xi. AFP/Carlos Barria

Bandaríkin og Kína vilja hjálpa til við að binda enda á stríðið í Úkraínu, sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti í morgun þegar hann hitti kínverskan starfsbróður sinn, Xi Jinping, í Shenzhen.

„Við viljum báðir leggja okkar af mörkum varðandi stríðið milli Rússlands og Úkraínu. Ég myndi mjög gjarnan vilja sjá því ljúka, og ég held að ég geti talað fyrir okkur báða,“ sagði Trump.

Trump og Xi á leiðinni á fund.

Trump og Xi á leiðinni á fund. AFP/Doug Mills

Samskipti Kína og Bandaríkjanna eru „stöðug og hafa batnað“, sagði Xi við Trump á fundinum, sem er sá þriðji þeirra á milli, augliti til auglitis, á þessu ári.

„Á þessu tímabili hafa samskipti Kína og Bandaríkjanna almennt haldist stöðug og batnað, sem hefur skilað íbúum beggja landa áþreifanlegum ávinningi og veitt heiminum stöðugleika og vissu,“ sagði Xi í Shenzhen í aðdraganda þríhliða viðræðna leiðtoganna við Vladímír Pútín Rússlandsforseta.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab