Þráinn flytur Sel á ION um helgina
Þráinn Freyr Vigfússon og teymið á Sel by ÓX bjóða upp á fimm rétta kvöldverð á ION Adventure á Nesjavöllum um helgina. Samsett mynd/Aðsend/mbl.is/Karítas
Þráinn Freyr Vigfússon og teymið á Sel by ÓX færa sig um set laugardaginn 21. nóvember og elda fyrir gesti ION Adventure á Nesjavöllum. Þar verður boðið upp á fimm rétta kvöldverð í Glerskálanum, nýrri viðbyggingu hótelsins, þar sem opið eldhús færir gesti nær matreiðslufólkinu.
Þetta er í fyrsta sinn sem Sel by ÓX stendur fyrir slíkum viðburði á hótelinu. Þráinn segir tilhlökkunina meðal annars tengjast aðstöðunni í Glerskálanum, þar sem löng eldhúslína og opið rými gera eldamennskuna sýnilega gestum.
Á undan kvöldverðinum verða bornir fram tveir smáréttir með kampavíni. Síðan taka við fimm réttir með vínpörun, valdir af matseðlum Sel.
Velja úr fyrstu fimm matseðlunum
Þráinn er maðurinn á bak við Michelin-veitingastaðinn ÓX og Sel by ÓX. Á Sel er skipt um matseðil í hverjum mánuði og segir hann teymið nú komið með fimmta matseðilinn. Það sé því úr ýmsu að velja þegar settur er saman sérstakur seðill fyrir kvöldið á ION.
„Við erum aðeins að velja úr þeim matseðlum sem við höfum verið með,“ segir Þráinn.
Áherslan verður á rétti sem gestir Sel hafa þegar fengið að kynnast og þann léttleika sem Þráinn segir teymið leitast við að draga fram í matargerðinni. Árstíðabundið íslenskt hráefni er í fyrirrúmi, með franskri matreiðslutækni og mildum asískum áhrifum.
Árstíðabundið íslenskt hráefni er í fyrirrúmi í matargerð Sel, með franskri matreiðslutækni og mildum asískum áhrifum. Ljósmynd/Aðsend
Yfir hundrað gestir verða á ION
Viðtökurnar hafa verið góðar og að sögn Þráins verða yfir hundrað gestir á viðburðinum en einhver sæti eru ennþá laus.
Kvöldið er selt sem gisting og kvöldverður fyrir tvo saman í herbergi. Innifalið er fimm rétta smakkseðill með vínpörun, gisting, morgunverður og aðgangur að heitum potti og saunu.
Þráinn velur rétti af fyrstu fimm matseðlum staðarins fyrir kvöldverðinn á ION Adventure. Ljósmynd/Aðsend
Gestir geta innritað sig frá klukkan 16.00 á laugardeginum. Þannig gefst tími til að njóta umhverfisins á Nesjavöllum og fara í heita laug undir berum himni áður en sest er að borðum eða morguninn eftir.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/32/1693210.jpg)



