Á von á sínu fimmta barni 41 árs

Ciara á galakvöldi í nóvember. Söngkonan er 41 árs og á von á sínu fimmta barni. AFP/Unique Nicole

Bandaríska söngkonan Ciara á von á sínu fimmta barni með eiginmanni sínum, Russell Wilson. Hjónin greindu frá því í september að von væri á viðbót í fjölskylduna. Í samtali við fjölmiðla vestanhafs segist söngkonan hlakka mikið til að verða móðir á ný.

„Ég er mjög róleg. Ég hef mikla orku þessa dagana,“ segir Ciara, sem er 41 árs. Hún kveðst hafa það að leiðarljósi að halda áfram að dansa eins lengi og hún getur.

Ciara og Wilson gengu í hjónaband árið 2016. Saman eiga þau Siennu Princess, níu ára, Win Harrison, sex ára, og Amoru Princess, tveggja ára. Þá á Ciara tólf ára soninn Future Zahir með rapparanum Future, fyrrverandi unnusta sínum.

Hjónin Ciara og Russell Wilson á verðlaunahátíð í október.

Hjónin Ciara og Russell Wilson á verðlaunahátíð í október. AFP/Angela Weiss

Grínast með að börnin þurfi að taka til hendinni

Söngkonan segir á léttum nótum að eldri börnin þurfi að taka að sér ýmis verk þegar fjölgar á heimilinu. „Amora, verðurðu tilbúin að elda?“ segist hún hafa spurt yngstu dóttur sína.

Hjónin eru enn að leggja lokahönd á jólaáformin en langar að fara með börnin á skauta við Rockefeller Center í New York. Sjálf sér Ciara fyrir sér að fylgjast með frá hliðarlínunni. „Ég ætla að horfa á þau skauta í kringum óléttubumbuna mína,“ segir hún.

People

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab