Grínistinn er tilbúinn að finna ástina - Hefur ekki stundað kynlíf í áratug

Leikarinn og grínistinn Tom Arnold (67) hefur sætt gagnrýni eftir að hafa opinberað ástæðurnar, sem hafa áður vakið umtal, fyrir því að hafa lifað í skírlífi í næstum áratug.

Arnold sem lék meðal annars í kvikmyndinni True Lies ásamt Arnold Schwarzenegger,  sagði við Page Six að hann væri tilbúinn til að finna ástina að nýju, sex árum eftir skilnaðinn við Ashley Groussman. Sýningarferð hans um landið, My Crazy X-Wife, hefur orðið til þess að hann er farinn að feta sig aftur inn í  stefnumótaheiminn, en grínistinn viðurkennir að viðhorf hans til þess að fara á stefnumót með fólki á hans eigin aldri hafi breyst.

„Ég hef ekki farið á stefnumót í níu og hálft ár, og fólk segir gjarnan við mig: ‚Þú ættir að hitta einhvern á þínum aldri. Og ég hugsa bara: ‚Heyrðu, hefurðu séð fólk á mínum aldri? Við erum algjörlega viðbjóðsleg!‘“

Arnold bætti þó við: „En málið er þetta: Ég hef komist að því að það eru til margar fyndnar, gáfaðar og aðlaðandi konur á sjötugsaldri.“

Vill finna einhverja sem hann getur kynnt fyrir börnunum

Arnold er ekki að leita að einnar nætur gamani eða einhverju haltu mér slepptu mér sambandi; hann segist vilja finna einhverja sem hann gæti kynnt fyrir börnum sínum, þeim Jax (13 ára) og Quinn (10 ára), sem hann á með Groussman.

„Ég held að þetta muni gerast einn daginn,“ sagði Arnold. Hann telur sig þó ekki vera neinn sérstakan eftirsóknarverðan kost og heldur því fram að konur „vilji ekki einhvern sem átti mikla peninga áður en er núna með tvö lítil börn“.

Ummælin, sem þykja umdeild, vöktu umræður meðal almennings og voru margir ósammála honum. Aðrir töldu hins vegar að fólk hefði brugðist of harkalega við.

„Nú? Þetta er dálítið harkalegt. Ég er 65 ára og finnst ég nú ekki vera neitt viðbjóðslegur,“ skrifaði netverji.

Annar sagðist hins vegar „skilja“ hvað hann átti við. „Ég skil þetta!!! Hann er að minnsta kosti hreinskilinn varðandi þetta.“

„Róum okkur öll sömul. Hann er grínisti, þannig að ég er viss um að hann hafi verið að grínast. En það er líka sannleikskorn í þessu; á okkar aldri finnst okkur líklega ekki lengur að við lítum jafnvel út og þegar við vorum yngri. Þetta kallast öldrun,“ sagði þriðji netverjinn.

Fjórkvæntur

Arnold er fjórkvæntur. Áður en hann kvæntist Groussman var Arnold kvæntur Shelby Roos á árunum 2002 til 2008. Þar á undan var hann kvæntur Julie Lynn Champnella frá 1995 til 1999, og frægaster hjónaband hans og Roseanne Barr, sem stóð frá 1990 til 1994.

Í sameiginlegri yfirlýsingu eftir skilnaðinn sögðust Groussman og Arnold vera „ánægð með að geta greint frá því að við höfum komist að sátt um forræðismálin“. „Við höldum áfram að vinna með ráðgjafa í foreldrasamstarfi og erum staðráðin í að ala upp börnin okkar á heilbrigðan hátt og í góðu samstarfi.“ 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab