ÍAV hífðu eigið féð upp eftir á

Unnið í Laugardal í fyrradag.

Eigið fé Íslenskra aðalverktaka var neikvætt sem nam yfir tveimur milljörðum króna þegar Þjóðarhöll ehf. tilkynnti að gengið hefði verið að tilboði fyrirtækisins sem það lagði fram til byggingar nýrrar þjóðarhallar í Laugardal.

Samkvæmt nýframlögðum árshlutareikningi ÍAV var það 15 dögum síðar sem svissneskt móðurfélag fyrirtækisins, Marti, ákvað að gefa eftir 3,3 milljarða skuld þess við sig en með því tókst að hífa eiginfjárhlutfall þess yfir 10% múrinn, en það var lágmarkið sem bjóðendum var sett í upphaflegum útboðsgögnum.

Ekki liggja fyrir upplýsingar um fjárhagsstöðu ÍAV, nú þegar fyrsta skóflustunga hefur verið tekin að hinu íturvaxna 17 milljarða verkefni. Hafi tap fyrirtækisins haldið áfram á sama skriði á síðari helmingi ársins, eins og raunin varð á hinum fyrri, má gera ráð fyrir að eigið fé þess hafi verið uppurið um miðjan ágúst síðastliðinn.

Engin svör hafa fengist frá Þjóðarhöllinni ehf., Reykjavíkurborg, fjármála- og efnahagsráðuneytinu eða ÍAV um málið.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab