Útlit fyrir að núllið náist ekki
Innlent | Morgunblaðið | 19.11.2026 | 6:00
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í gær að vextir bankans héldust óbreyttir. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 8,00%.
Þá spáir Seðlabankinn halla á ríkissjóði á næsta ári þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi boðað hallalaus fjárlög. Gert er ráð fyrir að hallinn nemi 0,3% af landsframleiðslu, eða 16,5 ma.kr., en í fjárlagafrumvarpinu er reiknað með afgangi sem nemur 0,1%. Munurinn er því 0,4% eða um 22 ma.kr. Stóra núllið hjá ríkisstjórninni virðist því ekki vera í kortunum samkvæmt mati bankans en fjármálaráðherra segir raunhæfar aðhaldsaðgerðir fram undan til að ná markmiðinu.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/33/1693300.jpg)