Ráðuneytið vissi af 16 milljóna skattaskuld
Utanríkisráðuneytið hafði upplýsingar um að eigendur Nebraska ehf. skulduðu samtals tæpar 16 milljónir króna í skatta og gjöld þegar það samdi við félagið um ráðgjöf Heiðu Kristínar Helgadóttur fyrir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Þetta staðfesta heimildir blaðsins innan úr ráðuneytinu.
Hjá hinu opinbera tíðkast að gera ekki verksamninga við aðila, sem ekki standa í skilum með opinber gjöld.
Samkvæmt gögnum Morgunblaðsins nam skuld Heiðu Kristínar 2,5 milljónum króna og skuld Guðmundar Kristjáns Jónssonar, meðeiganda hennar að Nebraska, um 13,5 milljónum. Skuldirnar voru í flokki þing- og sveitarsjóðsgjalda, sem tekur meðal annars til tekjuskatts og útsvars. Heiða Kristín fullyrðir í svari við fyrirspurn blaðsins að upplýsingarnar séu rangar.
Ráðuneytið greiddi Nebraska alls 14 milljónir króna án virðisaukaskatts vegna ráðgjafarinnar um þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið.
Greiðslurnar runnu til einkahlutafélagsins samkvæmt verksamningi, en voru ekki launagreiðslur ráðuneytisins til Heiðu Kristínar. Ráðuneytið dró því ekki af þeim vegna persónulegra skattaskulda hennar. Hafi Nebraska greitt henni laun gat hins vegar reynt á launaafdrátt hjá félaginu.
Samningurinn var undirritaður 4. mars og átti að gilda fram að atkvæðagreiðslunni 29. ágúst eða í tæpa sex mánuði. Greiðslurnar jafngilda þó átta mánaðarþóknunum. Samkvæmt svörum ráðuneytisins gerðu Þorgerður Katrín og Heiða Kristín munnlegt samkomulag um meiri greiðslur vegna aukins umfangs vinnunnar.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗