Þorsteinn Pálsson skrifar: Þar sem kraftbirtingarhljómur pólitískrar sannfæringar er mestur
Það varð Viðreisn til óhapps í byrjun vikunnar að ungur þingmaður sagði skilið við þær hugsjónir, sem hann bauð sig fram til að þjóna og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.
Að öðru leyti má segja að þessi atburður hafi orðið Viðreisn og hinum stjórnarflokkunum til nokkurs happs því að umræðan í kjölfarið hefur beint kastljósinu að þeim reginmun, sem er á milli ábyrgrar fjármála- og efnahagsstefnu Viðreisnar og hinna tveggja stjórnarflokkanna annars vegar og hins vegar ábyrgðarleysis Sjálfstæðisflokksins og hinna tveggja stjórnarandstöðuflokkanna.
Umræðan hefur líka beint athyglinni að hugmyndafræðilegum ágreiningi milli ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar, sem þarflegt er að ræða.
Til vinstri við samfylkinguna
Eftir sjö ár undir stjórnarforystu VG hefur Sjálfstæðisflokkurinn algjörlega snúið við blaðinu í ríkisfjármálum rétt eins og í utanríkismálum. Í stað þess að vera kjölfesta ábyrgrar ríkisfjármálastefnu í stjórn jafnt sem í stjórnarandstöðu eru þingmenn hans nú orðnir helstu talsmenn ábyrgðarleysis, upphrópana og yfirboða í opinberum fjármálum.
Ríkisstjórnin talar fyrir þeirri klassísku stefnu í opinberum fjármálum, sem hófsamir hægri flokkar og jafnaðarmenn hafa jafnan fylgt: Að mæta þenslu í hagkerfinu og verðbólgu með aðhaldi og hallalausum fjárlögum.
Þingmenn sjálfstæðismanna tala á hinn bóginn fyrir því að bæta í hallareksturinn, sem augljóslega mun auka þenslu og ýta undir verðbólgu. Þar tala þeir, eða skrækja öllu heldur, líkt og fremur hefði mátt vænta frá flokkum til vinstri við Samfylkinguna.
Hagspeki stjórnarandstöðunnar
Ekkert gæti komið sér verr fyrir atvinnulífið og hagsmuni launafólks, sem á afkomu sína fyrst og fremst undir stöðugleika í verðlagi og verðmætasköpun, en að þessi sameiginlega hagspeki Sjálfstæðisflokks og VG í gömlu ríkisstjórninni fengi brautargengi á ný.
Um þessa hagspeki var beinlínis kosið í síðustu þingkosningum. Það var ekki að ástæðulausu sem kjósendur höfnuðu henni og veittu flokkum með ábyrgari hugmyndafræði brautargengi.
Í kjölfar tapsins í þingkosningunum hafa þrír þingmenn sagt sig úr þingflokki sjálfstæðismanna. Eftir tapið töldu þeir sig allir geta fundið kröftum sínum betra viðnám utan hans og utan þings. Einn þeirra snerist gegn Evrópustefnu flokksins og gerðist í framhaldinu starfsmaður utanríkisráðherra.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafði þannig fast land undir fótum þegar hún hafnaði skörulega að ræða ríkisfjármálastefnu stjórnarandstöðuflokkanna í umræðum á Alþingi í vikunni. Annað hefði líka verið svik við kjósendur.
Staðreyndir um nýja ríkisfjármálastefnu
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur í þessu samhengi bent á nokkrar mikilvægar staðreyndir:
- Í stað viðvarandi halla undir forystu fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins hefur ríkisstjórnin eftir aðeins tvö ár náð hallalausum fjárlögum undir forystu fjármálaráðherra Viðreisnar.
- Þessi árangur hefur fyrst og fremst náðst með því að aðhaldsaðgerðir ríkissjóðs eru tvöfalt til þrefalt umfangsmeiri en í tíð fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins en samt hófsamar.
- Þrátt fyrir breytingar á tekjustofnum, þar sem sumir hafa hækkað en aðrir lækkað eða horfið, hafa heildartekjur ríkisins sem hlutfall af þjóðarkökunni ekki hækkað og eru áfram um 30%. Það er vegna umfangs aðhaldsaðgerðanna.
- Fjárfesting atvinnuveganna hefur ekki verið meiri í hálfa öld ef frá eru tekin árin fyrir hrun og almenn fjárfesting atvinnuveganna er að aukast um 6% á þessu ári.
Af þessum staðreyndum má draga þann einfalda lærdóm að það eru innantómir skrækir í talsmönnum stjórnarandstöðuflokkanna að ríkisfjármálaaðgerðirnar hafi þrengt að atvinnulífinu. Þær eru þvert á móti forsenda fyrir auknum stöðugleika í þágu atvinnulífsins.
Vélsögin á velferðina og innviðina
Einhverra hluta vegna hafa talsmenn ríkisstjórnarinnar hlíft þingmönnum Sjálfstæðismanna við umræðu um ríkisfjármálatillögur þær sem flokksráð þeirra samþykkti síðastliðið vor og koma eiga til framkvæmda um leið og stjórnarandstöðuhlutverkinu lýkur. Þá á að fara í aðrar öfgar.
Flokksráðstillögurnar fela í sér 160 milljarða króna niðurskurð á opinberum útgjöldum og lækkun skatta um 140 milljarða króna. Þetta er ríkisfjármálastefna sem í Suður Ameríku er kennd við vélsög. Vélsögin á velferðina og innviðina er mesta atlaga sem kynnt hefur verið gegn velferðarkerfi á Norðurlöndum.
Norðan Alpafjalla er reyndar bara eitt dæmi um slík áform. Þau voru kynnt til sögunnar af ríkisstjórn Liz Truss yst á hægri vængnum í breska Íhaldsflokknum. Áformin ein leiddu til slíks óróa á fjármálamörkuðum í Bretlandi að ríkisstjórnin fór frá innan fjörutíu daga.
Og talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa líka hlíft þingflokki Sjálfstæðismanna við umræðu um ákvörðun þeirra að einkavæða Landsvirkjun: Fyrir Viðskiptaráð gegn þjóðarvilja og þjóðarhagsmunum.
Hæverska þingmanna við kynningu á flokksráðssamþykktinni
Enn sem komið er hefur ekki spurst til þingmanna Sjálfstæðisfólks að kynna fyrir kjósendum þessi áform með vélsögina gegn velferðarkerfinu og helstu innviðum. Engu er líkara en þeim finnist sem hæverskan ein eigi þá við.
Að sögn kunnugra hefur kynning á flokksráðssamþykktinni jafnvel ekki átt sér stað í Norðaustur kjördæmi þar sem kraftbirtingarhljómur pólitískrar sannfæringar er mestur.
Þannig munu kennarar við Háskólann á Akureyri ekki hafa heyrt um niðurskurðarsamþykktina og ekki heldur starfsfólk sjúkrahússins í bænum. Sveitarstjórnarmenn munu ekki hafa heyrt um áhrifin af afnámi kílómetragjaldsins á samgönguframkvæmdir og sjálfa loftbrúnna.
Og hermt er að jafnvel bændur í Eyjafirði og á Héraði hafi ekki heyrt um niðurskurðinn á styrkjakerfinu sem í vændum er samkvæmt flokksráðssamþykktinni.
Hitt er að því mun hafa verið hvíslað að þeim fáu sem hlut eiga að máli í kjördæminu að veiðigjöldin verði lækkuð um 50%.
Samspil kærleika og sannleika
Kærleiksríkt hugarþel ríkisstjórnarinnar í umræðum um brotalamirnar í ríkisfjármálapólitík stjórnarandstöðunnar lýsir vissulega kristilegum þankagangi.
En hinu má ekki gleyma að það er líka í kristnum anda að segja kjósendum satt um pólitík stjórnarandstöðunnar meðan hún segir ósatt um stjórnarstefnuna.
Er ekki einmitt greyptur í hornstein Alþingishússins sá boðskapur frelsarans að sannleikurinn geri menn frjálsa?
Í þessum kristilega skilningi gengur Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra feti framar en leiðtogar hinna stjórnarflokkanna. Og á þakkir skildar fyrir það.
Pólitík snýst um val
Pólitík snýst um val. Umræðan nú í vikunni um ríkisfjármálin hefur dregið fram skýra mynd af tveimur ólíkum leiðum.
Annars vegar er klassísk ábyrgð þeirra sem mynda miðjuna í stjórnmálum til hægri og vinstri og kjósendur hafa treyst til að fara með stjórn landsins.
Hins vegar er ábyrgðarleysi þeirra sem skipt hafa um pólitískan ham og komið sér fyrir yst til hægri. Inn í þá umræðu er svo, þegar henta þykir, fléttað hugmyndum frá þeim sem eru yst til vinstri og telja eðlilegt að reka ríkissjóð með halla á kostnað þeirra sem borga skattana í framtíðinni.
Enginn segir að málsvörn ríkisstjórnarflokkanna sé auðveld, en hún byggir á traustum málefnalegum undirstöðum. Þegar til kastanna kemur skiptir það öllu máli. Ríkisstjórnin getur því verið keik. Og kjósendur standa andspænis skýrum ólíkum kostum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗