Skuldastaðan hafði áhrif á andlegu heilsuna
„Það hefur mikil áhrif á mann, þú ert stressaður og þú sefur lítið,“ sagði Hannes Sigurbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, í Dagmálum.
Hannes, sem er 51 árs gamall, var ráðinn framkvæmdastjóri KKÍ árið 2023 eftir að hafa verið formaður sambandsins frá árinu 2006.
Tóku skref til baka
KKÍ skuldaði í kringum 70 milljónir eftir að karlalandsliðið komst á tvö Evrópumót í röð, árin 2015 og 2017, og reyndist það erfiður tími fyrir Hannes.
„Þú ert ekki í góðu standi, þú ert stanslaust að hugsa og þetta er ekki eitthvað sem þú deilir með mörgum,“ sagði Hannes.
„Það skipti máli að vera með gott fólk í kringum sig á þessum tíma. Það er að mörgu leyti starfsfólki KKÍ á þessum tíma og stjórn sambandsins að þakka að þetta gekk upp. Það tók á að lofa einhverju sem þú gast kannski ekki alltaf staðið við.
Þegar þú lendir í svona aðstæðum þarftu að taka skref til baka og þú verður að þora. Andlega hliðin var erfið og líkamlega. Ég lærði það of seint en maður verður að hlúa vel að sjálfum sér í svona aðstæðum,“ sagði Hannes meðal annars.
Viðtalið við Hannes í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗