Rannsakendum barnsdráps lá við yfirliði

Lögregla fylgir Halimu El Bakhti í hádegisverðarhlé við meðferð málsins fyrir Sakadómi Loir-et-Cher. Hún hlaut 20 ára dóm fyrir að bíta, brenna og beinbrjóta fjögurra ára dóttur sína til bana og maður hennar, Ahmed Touloub, fimmtán ár fyrir hlutdeild í máli sem kallaði á umfangsmestu sakamálarannsókn í sögu Frakklands þegar það kom upp. AFP/Alain Jocard

Halima El Bakhti, 72 ára gömul kona og á sínum tíma móðir fjögurra ára gamallar stúlku sem hún myrti á hrottafenginn hátt á heimili fjölskyldunnar í Puteaux í Hauts-de-Seine-héraðinu, skammt vestan Parísar, var í gær dæmd til 20 ára fangelsisvistar og faðir stúlkunnar, Ahmed Touloub, til fimmtán ára fyrir hlutdeild sína í brotinu.

Lík dótturinnar, Inass Touloub, fannst við A10-hraðbrautina í Suèvres í héraðinu Loir-et-Cher 11. ágúst 1987. Á líkinu voru fjölmargir áverkar, þar á meðal tannaför manneskju, bein höfðu verið brotin í barninu og það brennt með straujárni.

Inass var jarðsett í ómerktri gröf skammt frá fundarstað líks hennar. Um þriggja áratuga skeið vissi enginn hver myrta stúlkan var, hún var aðeins þekkt undir heitinu „Litli píslarvotturinn við A10“.

Halima El Bakhti gerir grein fyrir sinni hlið fyrir sakadómi 2. nóvember við upphaf aðalmeðferðar málsins. AFP/Benoit Peyrucq

Lögregla ráðþrota

Lögreglan stóð ráðþrota þrátt fyrir eina umfangsmestu sakamálarannsókn í sögu Frakklands, aldur látnu stúlkunnar kom ekki heim og saman við nokkurt barn sem saknað var á svæðinu. Lögregluyfirvöld í 30 löndum fengu sendar upplýsingar um málið með beiðni um aðstoð og auglýsingar með mynd af Inass litlu voru hengdar upp í tugum þúsunda franskra skóla og á opinberum stöðum.

Engin viðbrögð, engar vísbendingar. Grafarþögn.

Leið svo og beið og erfðarannsóknum fleygði ört fram frá því sem var árið 1987. Það var svo árið 2018 sem kennsl voru borin á Inass eftir að erfðaefni úr bróður hennar – sem rannsakað var í tengslum við annað mál, óskylt – sýndi samsvörun við hennar.

Franska lögreglan var komin á sporið og foreldrarnir voru handteknir á þáverandi heimili sínu í Villers-Cotterêts í Norður-Frakklandi.

Eins og mbl.is fjallaði um hófust réttarhöld yfir þeim nú í byrjun mánaðar fyrir Sakadómi Loir-et-Cher, átta árum eftir handtökuna.

Camille Radot, verjandi Halimu El Bakhti, yfirgefur sakadóm síðasta dag aðalmeðferðar málsins, vitandi að hann er með tapað mál í höndunum. AFP/Alain Jocard

Engum líkamshluta þyrmt

Anaïs Allio saksóknari dró hvergi undan í málflutningi sínum og lagði þunga áherslu á að „engum líkamshluta Inass [hefði verið] þyrmt“ auk þess sem rannsakendum hefði legið við yfirliði við að fara yfir „óbærilegar ljósmyndir“ af krufningu stúlkunnar eftir því sem France Info greinir frá.

Kviðdómur í málinu komst að þeirri niðurstöðu að dómgreind móðurinnar, aðalákærða í málinu, hefði verið skert þegar stúlkan lést. Sú niðurstaða kom henni hjá lífstíðarfangelsi, þyngstu refsingu franskra hegningarlaga, þótt líklegt sé að 20 ára dómur yfir 72 ára gömlum sakborningi verði í framkvæmd lífstíðardómur.

Samkvæmt lýsingu France Info sátu sakborningarnir tveir algjörlega svipbrigðalausir og drúptu höfði á meðan þeir hlýddu á dómsforsendur og dóm í gær.

Halima El Bakhti og Ahmed Touloub hafa tíu daga frest til að áfrýja til æðra dómstigs.

France Info

Le Monde

Ouest France

BBC

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab