„Ég ætlaði ekki að lenda í þessu aftur“
Guðmundur Arnarsson hefur lent í ýmsu á þeim fimmtíu árum sem Ástund hefur verið starfandi. Meðal annars stendur upp úr þegar hann sleikti frímerki fyrir viðskiptavin. Samsett mynd/Aðsend
Guðmundur Arnarsson, eða Mummi í Ástund, segir að fjöldinn allur af skondnum atvikum standi upp úr í 50 ára sögu fjölskyldufyrirtækisins, sem fagnar tímamótunum með brag á morgun.
Fjölskyldufyrirtækið hefur verið starfrækt í Austurveri þar til nú þegar fjölskyldan hefur nú ákvað að söðla um og færa verslunina nær hestamönnum, í Lyngháls 3 í Árbæ. Af því tilefni verður efnt til veislu í nýju húsakynnunum.
Guðmundur stendur á sextugu og man tímana tvenna. Í fyrstu var Ástund bókabúð en um 1980 var einnig opnuð vídeóleiga í versluninni. Hún var þó skammlíf.
Nennti ekki minna fólk á að skila spólu
„Við hættum því Addi bróðir nennti ekki að vera að hringja alltaf í fólk þegar það gleymdi að skila spólu,“ segir Mummi.
Ástund var stofnuð af hjónunum Arnari Guðmundssyni og Sigríði Guðmundssyni en næsta kynslóð hefur tekið við taumunum.
„Pabbi er reyndar alltaf hérna, besti iðnaðarmaður sem ég þekki, orðinn 82 ára,“ segir Mummi.
„Við byrjuðum náttúrlega sem bókabúð hérna 1976 en seldum alltaf hestavörur líka. Svo var pabbi sýningarmaður í Regnboganum og Háskólabíó þannig að þess vegna prófuðum við vídeóleiguna. Við vorum með fótboltavörur og gerðum samning við Manchester United á sínum tíma en erum núna með hestavörur og vörur fyrir dans og ballett. Við höfum breytt svolítið í tímanna rás eftir því hver áhugamálin eru, í hverju við erum. Ég veit ekki hversu góð viðskiptahugmynd það er en við höfum veðjað á það sem við sjálf höfum verið að stunda,“ segir Mummi.
Ástund var stofnuð af föður Guðmundar, Arnari Guðmundssyni, en sjálfur byrjaði Mummi að vinna hjá fjölskyldufyrirtækinu á unglingsaldri.
Margt skondið kemur upp í hugann þegar horft er yfir farinn veg, að sögn Mumma. Aðspurður segir hann eina sögu gjarnan bera á góma frá unglingsárunum, þegar hann hafði aðeins starfað í versluninni í stuttan tíma.
Dró upp 20 umslög
„Ætli ég hafi ekki verið 16–17 ára þegar inn kemur eldri kona í bókabúðina og biður um að
kaupa eina örk af frímerkjum. Í framhaldinu tekur hún upp umslag og biður mig um að sleikja frímerkið svo hún geti sett það á umslagið. Ég kvað það nú lítið mál og sleikti frímerkið fyrir hana og hún setti það á umslagið. Hún brosti við og seildist í töskuna sem hún var með og tók upp 20 umslög til viðbótar. Þannig að ég varð bara að gjöra svo vel og sleikja 20 frímerki fyrir konuna sem hún setti svo samviskusamlega á umslögin. Svo fórum við saman að póstkassa og hún setti þetta þar og var hæstánægð með þjónustuna. Okkur fannst þetta náttúrlega frekar fyndið en eftir þetta var keyptur svona vatnspúði sem tók við verkefninu af mér. Ég ætlaði ekki að lenda í þessu aftur,“ segir Mummi og hlær einlæglega.
Ráðdeild og eljusemi lykillinn að langlífinu
Spurður hverju hann þakki langlífi Ástundar segir hann ráðdeild í rekstri hafa verið lykilatriði.
„Við erum búin að ganga í gegnum ýmislegt. Myntbreytingu, bankahrun, Covid og fleira. Þetta er fyrst og fremst eljusemi og það orð einkennir foreldra mína í hnotskurn. Þannig vorum við alin upp og blóð, sviti og tár hafa skilað þessu. Svo er einnig mikilvægt að leggja fyrir þegar vel gengur til að eiga fyrir áföllunum. Maður veit aldrei hvað ríkisstjórnir og Seðlabanki gera. En við vitum að ef menn eru of duglegir að taka út úr rekstrinum þá er ekki til kúla í byssunni þegar á þarf að halda.“
Ástund efnir til stórveislu í Lynghálsi á morgun þar sem Helgi Björnsson mun troða upp. Þá verður fyrirtækið með tilboð á vörum sínum um leið og nýja húsnæðið verður formlega opnað.
„Við erum meira að segja með 50% afslátt á einhverjum vörum. Okkur fannst það táknrænt fyrir árin 50,“ segir Mummi.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

